22.02.1930
Neðri deild: 34. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1175 í B-deild Alþingistíðinda. (875)

9. mál, flugmálasjóður Íslands

Sveinn Ólafsson:

Það kemur sér illa, að frsm. n. skuli ekki vera viðstaddur, því að hann er sá maður, sem rækilegast hefir hugleitt þetta mál og þar af leiðandi var bezt undir það búinn að halda uppi svörum fyrir þessu frv.

Ég get ekki fallizt á það hjá hv. þm. Borgf., að síldarleitin komi aðeins hinum stærri og hraðskreiðari skipum að gagni, því að þær fréttir, sem flugvélin dreifir út um. Síldargöngur, ná einnig til hinna minni skipa, og jafnvel til bátanna líka. Þeirra hluta vegna er því engin ástæða til að vera að amast við því, þó að eitthvað sé gert til að búa í haginn fyrir síldveiðimenn.

Þá get ég ekki heldur fallizt á það hjá hv. þm. Borgf., að flugvélin sjái ekki til síldarinnar nema í logni, af því að síldin segi aðeins til sín í yfirborði vatnsins og sjáist eigi nema í logni. Þetta er misskilningur. Síldartorfur má oft sjá, þótt sjór sé gáraður af vindi, og segir litur þá til. Það er gömul þekkt aðferð bæði hér og í Noregi, þar sem síldveiði er stunduð á fjörðum inni, að skyggnast eftir síldinni hátt úr fjallahlíðum, en síldarleit með flugvél er á sömu lögum byggð, og litbrigðin á sjónum segja þá til líkt og úr brattri fjallshlíð.

Svo er önnur hlið á þessu máli, sem vert er að drepa á í þessu sambandi. Með stofnun slíks sjóðs og hér um ræðir er ekki einungis stefnt að því að létta undir þessari atvinnugrein, síldveiðinni, heldur og að styrkja almennar flugferðir í framtíðinni. Frv. gerir nefnilega ráð fyrir, að nokkur hluti gjaldsins falli til aðstoðar síldveiðunum, en nokkur hluti þess, og þó að vísu minni hlutinn, geymist til stuðnings flugferðum síðar meir.

Ég vildi með þessum fáu orðum aðeins hlaupa í skörðin fyrir hv. frsm., sem er hér ekki viðstaddur í svipinn, en sem að sjálfsögðu hefir meira til brunns að bera í þessum efnum heldur en ég og ýmsir aðrir, sem um þetta ræða.