19.03.1930
Neðri deild: 57. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í B-deild Alþingistíðinda. (89)
1. mál, fjárlög 1931
Ólafur Thors:
Hv. fjvn. hefir flutt brtt. við brtt., er ég bar fram við 2. umr. og þá var samþ. Sú till. var um, að veitt væri til styrktarsjóðs Margrétar Bjarnadóttur 800 kr. Nú leggur hv. fjvn. til, að þessi upphæð sé lækkuð niður í 500 kr. Hv. frsm. fjvn. gerði þá grein fyrir þessari brtt., að n. hefði þótt rétt, þar sem þessi styrkur er kominn inn í fjárl. í annað sinn — og mætti því búast við, að þetta yrði fastur styrkur — að lækka hann til samræmis við styrkt þá, er aðrir sjóðir fá. Með þeim forsendum, að styrkurinn verði til frambúðar, vil ég sem flm. að fyrri till. sætta mig við þessa lækkun.
Ég flyt eina brtt., þá VII. á þskj. 316. Er hún um það, að styrkurinn til slysavarna verði hækkaður um 12.500 kr., eða úr 10.000 kr. upp í 22.500 kr. Í aths. við liðinn geri ég grein fyrir því, hvernig verja skuli hækkuninni. 8.000 kr. skal varið til að fullgera veg þann, er hafinn var með sama framlagi í fyrra milli Sandgerðis og Stafness. En 4.500 kr. skal varið til símalagningar milli sömu staða.
Ég hygg, að mörgum hv. þdm. séu enn í fersku minni umr. um þennan veg frá síðasta þingi. Þá bar hv. fjvn. fram till. um 8.000 kr. byrjunarveitingu til vegagerðar milli Sandgerðis og Stafness. En ástæðan til þess var sú, að Slysavarnafélag Íslands eignaðist björgunarbát, sem átti að hafa aðsetur í Sandgerði. En bátinn ætlaði Slysavarnafélagið að nota á þessu svæði, frá Sandgerði að Stafnesi. Þá lágu fyrir gögn, er sýndu það, að síðan um aldamót höfðu orðið 62 skipströnd á þessu svæði, og höfðu þau orðið 92 mönnum að grandi. Þá var það upplýst, að björgunarbáturinn kæmi ekki að notum, nema hægt væri að flytja hann á landi. Báturinn er þannig gerður, að undir honum er breiður sleði, sem krefst breiðs vegar. Þá var ennfremur upplýst, að ströndin þarna væri afar skerjótt og sjógangur mikill í öllum áttum, nema austanátt. Væru því lítil tók á því að flytja bátinn á sjó, langar leiðir máske, þegar þyrfti skyndilega að nota hann. Till. fjvn. hnigu í þá átt, að mjög miklar líkur væru fyrir því, að mikil not gætu orðið að bátnum, en að þau not kæmu ekki að haldi, nema þarna væri vegur til að flytja bátinn eftir.
Nú mun svo komið fyrir fjárveitingu síðasta þings, að vegur þessi er hálfgerðar. Ég hefi því leyft mér, út frá sömu rökum, að leggja til, að fé væri veitt nú til að fullgera veginn. Og það er rökrétt hugsun, að hafi verið rétt að byrja á þessum vegi, þá sé einnig rétt að ljúka við hann. Og fyrst hv. fjvn. áleit það rétt í fyrra, þá vænti ég þess, að hún líti enn sömu augum á það mál og styðji því till. mína um að verkinu verði lokið. Ég veit ekkert það hafa komið fram, er afsanni álit fjvn. í fyrra. Og þar sem frsm. þess kafla fjárl. er hinn sami nú og þá, þá vil ég leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að rifja upp orð hans þá um þetta efni. — Hv. frsm. sagði, eftir að hafa lýst því, hve staðurinn þarna suður frá væri hættulegur skipum, er þangað bæri: „En báturinn mun ekki koma að fullum notum þarna, nema hægt sé að flytja hann eftir landi, enda er hann þannig útbúinn. Til þess þarf að leggja breiðan veg, svo að hægt sé að draga bátinn fram og aftur, eftir því sem með þarf. N. gat ekki lagt á móti því, að þetta fé yrði veitt, því að leitt væri til þess að vita, að slys yrði fyrir það, að ekki væri hægt að koma bátnum áfram og horft hefði verið í þessa fjárveitingu. Þetta er að vísu aðeins byrjun, en vonandi verður þess ekki langt að bíða, að víðar á landinu verði hafnar slíkar björgunartilraunir, og má þá ekkert til spara, ef hægt væri með þessu móti að koma í veg fyrir eitthvað af þeim mörgu slysum, sem eru svo tíð hér við land“.
Þetta er vel og drengilega og af fullum skilningi mælt. Og mér finnst nú raunar, að n. hefði sjálf átt að leggja til, að þetta fé væri veitt. En hún hefir nú að vísu í mörg horn að líta, og er því skiljanlegt, að þetta gæti gleymzt. En ég veit, að hún muni styðja þessa till. mína með atkv. sínum.
Nauðsyn þessa máls var viðurkennd með einhuga áliti mikils meiri hl. Alþ. í fyrra. Þarna hafa á tæpum þremur áratugum farizt 92 menn í sjóinn. Ég vona, að okkur komi saman um það, að ekki sé vert að kalla fleiri vitni á þann hátt fram til sönnunar nauðsyn þessa máls.
Í sjálfu sér get ég fært öll hin sömu rök fyrir nauðsyn símalagningar frá Sandgerði að Stafnesi. Ef slys ber að höndum, er vitanlega hin mesta nauðsyn, að boð komist sem skjótast til þeirra, sem fyrir björguninni eiga að standa. En nú nær síminn ekki lengra en til Sandgerðis. Fyrir því fer ég fram á, að veittar séu 4.500 kr. til að tengja saman Sandgerði og Stafnes. Hef ég snúið mér til landssímastjóra um þetta og hann gefið þær upplýsingar, að línan myndi kosta þetta. Þá hefi ég ennfremur snúið mér til formanns Slysavarnafélagsins og óskað eftir áliti hans um nauðsyn þessarar fjárveitingar. Herra landlæknirinn tjáði mér þegar í stað, að stjórn Slysavarnafélagsins væri samþykk þessari beiðni og teldi nauðsynlegt, að hún kæmi fram. Hinsvegar hefir dregizt úr hömlu, að hann léti þetta álit í ljós skriflega. En ég hefi fengið upplýsingar úr öðrum áttum, sem staðfesta, að umsögn formannsins var rétt.
Ég gæti hugsað mér, að til væru þeir hv. þm. hér í deild, sem að vísu viðurkenna þörfina fyrir þennan síma, en líti meira á getuleysi ríkissjóðs að sinni. Vildu því vera með í því að samþykkja veginn, en teldu, að síminn gæti frekar beðið. Vegna þessara manna hygg ég, að það væri rétt af mér að koma fram með varatill., þannig að mönnum gæfist kostur á að greiða atkv. með veginum, enda þótt þeir treystu sér ekki til að vera með hvorutveggja, síma og vegi. Geta menn þá gengið lengra eða skemmra í þessu, eins og samvizkan býður þeim að gera.