27.01.1930
Neðri deild: 6. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í C-deild Alþingistíðinda. (894)

24. mál, samskóli Reykjavíkur

Flm. (Magnús Jónsson):

Ég ætla ekki að halda langa inngangsræðu fyrir þessu máli, enda gerist þess ekki þörf. Það er borið fram í svipuðu formi og á þinginu 1927, eða eins og þessi hv. deild hafði gengið frá því áður en það sofnaði í hv. Ed. Við flm. höfum að þessu sinni látið prenta upp að mestu leyti þá grg., sem þáverandi ríkisstj. lét fylgja frv. 1927. Auk þess vil ég leyfa mér að benda á hið rækilega nál., sem minni hl. menntmn. þessarar hv. d. lét fylgja afgreiðslu frv. 1927, og skrifað er af núverandi fræðslumálastjóra, hv. þm. V.-Ísf. Er þar safnað saman því, er mestu máli skiptir, og sýnt með rökum, að samskólar séu ódýrari í rekstri, enda er álit fræðslumálastjóra, að ríkið eigi að setja á stofn slíka skóla, þar sem svo hagar til, að því verði við komið. Við þessi gögn, sem ég hefi nú nefnt, þarf ég ekki miklu að bæta.

Allir hv. þdm. kannast við, að auka þurfi unglingafræðsluna í landinu, og þessi hv. deild samþ. 1927, að þörf væri á. að auka slíka fræðslu hér í bæ. Að vísu skal það játað, að margt vantar enn, sem bæta þarf, en þó er aukin unglingafræðsla mest aðkallandi, og ekki sízt í þessum bæ. Hér er meira en ¼ af allri höfðatölu þjóðarinnar, og auk þess kannske, ýmsra ástæðna vegna, enn brýnni þörf á slíkri fræðslu í þéttbýli. Í fjölmennum kaupstöðum er aðstaðan líka betri um að sækja skólann og full þörf á að hafa hönd í bagga með því, hvernig unglingarnir verja vetrinum á þessum árum.

Hér var áður að nafninu til gagnfræðaskóli, eða gagnfræðadeild Menntaskólans, sem öllum stóð opin, þó að menn hafi ef til vill ekki áttað sig á því til fulls og álitið skólann eingöngu til þess að útskrifa stúdenta. En fyrir tveim árum var þessi gagnfræðadeild svo að segja lögð niður, þegar kennslumálastj. fyrirskipaði að takmarka tölu þeirra unglinga, sem inntöku fá í Menntaskólann árlega, og miða hana við þá þörf, eða hæfilega stúdentatölu á ári til viðhalds embættismannastéttinni. En þegar þessi ráðstöfun kennslumálastj. varð heyrum kunn og að einir 25 unglingar áttu að fá inntöku í Menntaskólann á ári, þá upplukust líka augu almennings fyrir því, að mjög væri þrengt að unglingum þessa bæjar um að afla sér aukinnar fræðslu. Þess var heldur ekki langt að bíða, að ofurlítið var gert til þess að bæta unglingafræðsluna. Á þinginu í hitteðfyrra voru sett lög um unglingaskóla Reykjavíkur, og hefir hann starfað í tvo vetur. En eins og kunnugt er, vantar þann skóla húsnæði, enda er langt frá því, að þessi skóli bæti að fullu úr þörfinni.

Þá hafa einstakir menn ráðizt í að koma á fót gagnfræðaskóla Reykjavíkur, en um hann er sama að segja og hinn, að húsnæðisskortur stendur honum fyrir þrifum. En stofnun beggja þessara skóla hefir sýnt, að mikil þörf er á aukinni unglingafræðslu. Báðir skólarnir eru yfirfylltir og bekkirnir margskiptir.

Við, sem flutt höfum málið að þessu sinni inn í þingið, höfum ekki talað við þá aðila, sem frv. nefnir og gert er ráð fyrir, að standi að byggingu samskólans; en þessir aðilar eru: bæjarstjórn Reykjavíkur, Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík og Verzlunarráð Íslands. Við gerum ráð fyrir, að vilji þessara aðila um að koma stofnun þessari upp sé óbreyttur frá 1927. Og um bæjarstj. má geta þess, að hún skoraði eindregið á Alþingi 1928 að hrinda málinu áfram þá; svo að sennilegt er, að hún sé því fylgjandi enn, en það varðar mestu um framkvæmdirnar. Um hina aðilana tvo skiptir minna máli, þó að ég hinsvegar þori að fullyrða, að þeir muni ekki láta á sér standa, þegar til framkvæmdanna kemur.

Annars má vel vera, að um fleiri skóla geti verið að ræða, sem taka ætti með, og mætti þar til nefna kvennaskólann hér í Reykjavík. Hann virðist geta komizt undir þennan hátt engu síður en þeir skólar, sem nefndir eru í frv. En við höfum flutt frv. óbreytt, eins og ég hefi áður sagt, og má þá víkja því við í meðferð þingsins, ef mönnum sýnist svo.

Eins og kunnugt er, starfa hér í bænum tveir verzlunarskólar, og á þinginu 1927 varð vart allmikillar óánægju yfir því, að báðir skólarnir skyldu ekki teknir með í frv., og svo er enn, að annar skólinn er aðeins tekinn með. En vitanlega má breyta þessu, ef samkomulag fæst um annaðhvort að steypa skólunum saman eða taka þá báða upp í frv.

Það, sem aðallega kemur til greina í meðferð þingsins á þessu máli, er kostnaðarhliðin. Enda er ekki hægt að neita því, að hér verður um fjarska mikinn kostnað að ræða, að koma slíkum skólum á fót. Það verður að reisa mikil húsabákn og margt fleira að gera, sem feikna kostnað hefir í för með sér. En á það verður að líta, að það er ekki hægt fyrir ríkið að hólka því fram af sér til lengdar að reisa þennan skóla. Það er hægt að fresta því um nokkur ár, en það verður að gerast fyrr en síðar. Bærinn heldur vonandi áfram að breiðast út og fólkinu fjölgar, en jafnframt verður erfiðara og erfiðara að leysa málið og kostnaðurinn meiri og meiri, eftir því sem framkvæmdirnar dragast lengur.

Þegar um kostnaðarhliðina er að ræða, ber einnig að líta á það, að ríkið hefir þörf á að byggja yfir suma þá skóla, er það kostar að öllu leyti, t. d. eins og vélstjóraskólann og fleiri skóla, og hlýtur þá að vera hagnaður að vera í sambyggingu með bænum. Eins er um rekstrarkostnaðinn að ræða, að þar léttir bærinn einnig undir með ríkinu.

Ég ætla ekki að þreyta hv. deild með lengri ræðu. Það er alveg víst, að þörfin er brýn að koma unglingafræðslu bæjarins í betra og fullkomnara horf. Þess vegna veit ég, að hv. deild muni láta málið sæta þinglegri meðferð, lofi því að ganga til 2. umr. og hv. menntmn.