27.01.1930
Neðri deild: 6. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í C-deild Alþingistíðinda. (899)
24. mál, samskóli Reykjavíkur
Flm. (Magnús Jónsson):
Ég þakka hv. þm. V.-Ísf. fyrir það, hve vel hann tekur í þetta mál nú sem fyrr. Hann hefir alltaf fært manna sterkust rök fyrir því, að samskólafyrirkomulagið verður alltaf það hentugasta. Ég er líka, eins og ég drap á áðan, hv. þm. sammála um, að það er einn Akkillesar-hæll á frv., nefnil. verzlunarskólinn. Ég er ekki viss um, að hann geti beinlínis orðið málinu að fótakefli, en hitt er alveg rétt hjá hv. þm., að þegar sterk flokkaskipting er með þjóðunum, verða skýr rök að víkja. Þó að segja megi með sanni, að einn góður verzlunarskóli væri fyllilega nægilegur, þá er gangur málanna einu sinni sá, að menn geta ekki sameinazt um þann skóla. Ég mundi því vel geta fallizt á, að verzlunarskólinn væri tekinn út úr frv. Ég hefi einmitt frá byrjun talið það einn aðalkost frv., hvað það er sveigjanlegt. Það má ýmist fella úr því eða auka við það, eftir því sem tíminn leiðir í ljós, að sé æskilegt.
Að flestu leyti get ég líka fallizt á aðalatriðin í ræðu hæstv. ráðh. Mér skildist hann viðurkenna, að það ástand, sem við búum nú við, að ekki sé séð nema að litlu leyti fyrir ungmennafræðslunni í Reykjavík, væri algerlega óviðunandi. En þess ber að gæta, að í þessu efni má ekki láta það sama ganga yfir Reykjavík og aðra kaupstaði landsins. Reykjavík hefir að sumu leyti mikla sérstöðu. Að vísu er sjálfsagt að koma á fastri reglu um hlutfallið á milli framlags úr ríkissjóði og bæjarsjóði. En ég vil benda á tvö atriði. Í fyrsta lagi það, að vegna sérstöðu Reykjavíkur verður skóli í Reykjavík alltaf að nokkru leyti líka skóli fyrir landið. Í öðru lagi verður hér í Reykjavík, vegna mannfjöldans, eðlileg hin fyrirhugaða skólasamsteypa, en hvergi annarsstaðar á landinu. En vitanlega vissum við flm. ekkert um það frv., sem hæstv. ráðh. er að boða, þegar v ið bárum samskólafrv. fram hér í hv. d., og auðvitað tökum við tillit til frv. hæstv. ráðh.
Eins og flokkaskiptingin gerir eðlilegt að láta röksemdir víkja hér í deildinni, eins getur verið, að flokkaskipting geri það nauðsynlegt að taka aðra aðferð í þessu máli heldur en þá, sem hentugust er, aðeins til þess að gera hæstv. ráðh. til hæfis. En ég tek það fram, þar sem hann talaði um, að þetta samskólafrv. væri innflutt, að það á alls ekki við að segja sem svo. Hvað er það í okkar skólamálum, sem ekki má segja hið sama um? Ég held það sé allt innflutt. Latínuskólinn kom á sínum tíma sem innflutningsvara og hefir samið sig smám saman að landsins þörfum. Barnafræðslan okkar er algerlega innflutt, og það svo greinilega, að hún kom eins og demba ofan á hið gamla og þjóðlega fyrirkomulag og útrýmdi því. Ég læt ósagt, hvort það varð til góðs, en svona er það. Við erum ekki svo stórir, að við höfum hingað til getað haldið okkar fyrirkomulagi, þegar leitað hefir verið sterklega á af útlendu, margreyndu fyrirkomulagi.
Ef við tökum þennan skóla hér, finnst mér minna af innfluttum skoðunum kringum hann en víða koma fram annarsstaðar. Þetta fannst mér hæstv. ráðh. sanna sjálfur í sinni ræðu. Hann kvað það óeðlilegt, að stýrimannaskólinn væri ekki tekinn með. Ef hér væri um innflutta vöru að ræða, væri sjálfsagt að ríkið sameinaði sína skóla þarna. En höfundar frv. segja sem svo: Stýrimannaskólinn á hús, vel nothæft, þó að það sé gamalt nokkuð. Þess vegna taka þeir hann ekki með, bara af þessari alíslenzku ástæðu.
Ef við lítum á þennan skóla í Nürnberg, sem Jón Ófeigsson hefir lýst, þá er hann ólíkur þessari hugmynd um samskóla. En við að skoða þennan skóla sér þessi maður, hve hentugt það er að sameina marga skóla undir einu þaki. Það er svo að segja ekkert í þessu frv., sem maður getur líkt við þetta ógurlega skólabákn í Nürnberg, þar sem hver nemandi getur sett saman handa sér sitt nám, eins og maður á stórum hótelum slæðir handa sér marga ágæta rétti. Svo stórt er þetta skólabákn. Þetta sá Jón Ófeigsson, að ómögulegt var hér. En hann vill taka upp þá góðu hugmynd að sameina marga skóla undir einu þaki. Og eins og hv. þm. V.-Ísf. benti á, þá verður það gert fyrr eða síðar. Það eru svo sterk rök með því, að það hlýtur að verða gert. Það er um það eitt að ræða, hvað mikið verður hringlað í málinu áður.
Þá er valið á skólunum. Í Nürnberg er allt sameinað. Hér er verið að reyna að finna út, hvað eigi helzt að sameina. Iðnskólinn og verzlunarskólinn eru ekki teknir af því, að svo sé gert í Nürnberg. Þar eru allir upphugsanlegir skólar, sem fræða um allt milli himins og jarðar. En hér er um að ræða m. a. skóla, sem tilheyra tveim hinum stærstu atvinnugreinum, sem ríkið hefir ekki ennþá tekið að sér. Hæstv. ráðh. sagði, að það væru miklu fleiri menn, sem annaðhvort yrðu bændur eða sjómenn. En ríkið hefir séð fyrir skólum handa þeim. En öllum þeim sæg manna, sem fæst við verzlun og iðnað, hefir ríkið ekki sinnt nóg að veita fræðslu. Þessir skólar eru valdir með íslenzkt ástand fyrir augum, þótt hitt sé náttúrlega líka tekið til greina, að þeir starfi báðir í slæmum húsakynnum.
Hæstv. ráðh. kom með það, sem nú er „móðins“ að tala um, hvað voðalegt væri húsnæði verzlunarskólans. En þetta eru rétt laglegar stofur, mjög vel settar í stand, dúkar hafa verið settir á gólfin. Húsið er komið í gott ástand. Hitt er annað mál, að húsið er gamall hjallur og ófullkomið í fyrstu.
Iðnskólinn starfar líka í húsnæði, sem ekki er til frambúðar. Hvers vegna eru þeir báðir settir saman? Af því að þeir þurfa báðir að fá húsakynni. Og hvers vegna er ekki lagt til að hafa stýrimannaskólann með? Af því að hann starfar í góðum húsakynnum; þess vegna er ekki þörf á að flytja hann í samsteypuna. Þetta frv. mætir einmitt sérstakri þörf okkar Íslendinga nú sem stendur.
Það er náttúrlega eðlilegt, að mönnum vaxi í augum kostnaðurinn við að reisa þetta hús. Hæstv. ráðh. var að tala um það, hvað geysilegur kostnaður er við að byggja vinnustofur fyrir skólana. En í þeim lögum, sem hann sjálfur kom gegnum þingið 1928 um ungmennafræðslu í Reykjavík, þar er gert ráð fyrir — að ég hygg — ennþá meira húsi en nokkurntíma í því frv., sem hér er farið fram á, vegna þess að þar á að kenna það, sem ekki er gert ráð fyrir í samskólunum. Ég álít það að vísu gott að kenna að steypa múrsteina og hafa skólaeldhús, en það kostar bara svo geypilega mikla peninga.
Hæstv. ráðh. sagði, að kaupstaðirnir kæmu á eftir. Hann er þá ekki hræddur við þetta, fyrst hann ætlar að bera slíkt fram fyrir alla kaupstaði. En það er nú svo, að það er ekki sama þörfin fyrir alla kaupstaði. Maður gæti heldur líkt Reykjavík við heilan landsfjórðung, svo margt fólk er hér saman komið og svo mikil er þörfin orðin.
Ekki þarf ég að fara langt út í orð hæstv. ráðh. um það, hve illa bæjarstjórn Reykjavíkur tekur í að leggja fram til skóla. Það verður reynt þegar á herðir.
Bæjarstj. tók þannig í það að leggja að sínum hluta stofnkostnað til þessa skóla, að hún skoraði á þingmenn að flytja frv. á næsta þingi á eftir að það var fellt.
Ég held, að hún skorist engan veginn undan. Hitt er annað mál, að þegar þessu máli er hrundið og brytt á öðru, sem bærinn telur ófullnægjandi, þá getur komið þrái í menn við að leggja fé í það, sem þeir ekki óska eftir, þegar þeim er neitað um það, sem þeir vildu fá. Annars er mér ekki svo kunnugt um þetta, að ég geti neitt sagt um þetta nú.
Þá ætla ég að leiðrétta það, sem hæstv. ráðh. talaði um smíðagalla á frv., að skólastjóri ungmennaskólans hafi lægst laun. Hann á að hafa ókeypis húsnæði, ljós og hita í húsinu, svo að hans laun eru hæst í raun og veru. Það er ekki svo mjög hætt við, að beinir smíðagallar séu á þessu frv. Bæði er það talsvert undirbúið af Jóni Ófeigssyni og því næst af fyrrv. stj. Síðan hefir það verið athugað í n. vel og vandlega.
Annars hefir aðalatriðið fyrir mér verið ungmennaskólinn. Þar knýr þörfin mest á. En hitt er sjálfsagður hlutur, að nota sér um leið að koma fleiri skólum undir sama þak og nota sömu kennslukrafta, að svo miklu leyti sem mögulegt er.