11.03.1930
Neðri deild: 50. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í C-deild Alþingistíðinda. (920)

26. mál, hafnargerð á Sauðárkróki

Jón Sigurðsson:

Allmiklar umr. hafa farið fram um þetta frv. síðan ég tók til máls síðast, og hafa þær að nokkru leyti snúizt um aðgerðir hv. sjútvn. viðvíkjandi þessum hafnarlagafrv., og hafa um. gert upp reikninga sína um nefndarstörfin.

Það eru nú 40 dagar síðan þetta mál kom til hv. sjútvn., svo að hún hefir haft fullkominn tíma til að skila nál., enda þótt það hafi ekki, gengið greiðara en raun hefir á orðið. Af mér og ýmsum öðrum stuðningsmönnum þessa máls hefir sérstaklega verið bent á þrjár veigamiklar ástæður því til stuðnings.

Í fyrsta lagi þá, að það er óhugsandi, að kauptún eins og Sauðárkrókur geti risið undir þessum framkvæmdum með þeim skilyrðum, sem meiri hl. sjútvn. hefir lagt til að sett verði. Ég gerði grein fyrir þessu í fyrri ræðu minni, og það hefir ekki verið hrakið eitt atriði af því, sem ég þá sagði. — Í öðru lagi hefir verið bent á hina miklu þörf hlutaðeigandi kauptúns og héraðs fyrir þessa höfn, og því hefir heldur ekki verið hnekkt á nokkurn hátt. Ég geri meira að segja ráð fyrir því, að engum hafi dottið í hug að véfengja það. Mönnum er það yfirleitt kunnugt, hvað hafnleysið stendur þessu og öðrum héruðum fyrir þrifum. Ég tek ekki til greina staðhæfingar hv. 4. þm. Reykv., að skipin geti afgr. sig á Hofsósi og Kolkuósi, þegar það er ekki hægt á Sauðárkróki. Það tel ég ekki aðgengileg úrræði fyrir þá, sem sækja verzlun að Sauðárkróki. (SÁÓ: Ég hefi verið með í því, að skip hafa flúið frá Sauðárkróki til Hofsóss og afgr. sig þar). Einmitt þess vegna ætti hv. þm. að skilja enn betur, hversu mikil. nauðsyn er á þessu máli fyrir Sauðárkrók og héraðsbúa. Ég hygg, að hv. þdm. séu ekki svo skyni skroppnir, að þeir skilji ekki, hversu mikinn kostnað það hefir í för með sér fyrir Skagfirðinga, er sækja á Sauðárkrók, að þurfa að flytja vörur sínar á bátum eða á annan hátt frá þessum uppskipunarstöðum austanmegin fjarðarins. Það kostar vitanlega stórfé. Kostnaðurinn, sem af því leiðir, að vörur frá Sauðárkróki eru lagðar upp á þessum stöðum, er svo mikill, að Sauðárkróksbúar kjósa heldur að láta vörurnar fara áfram með skipunum og bíða næstu ferðar, jafnvel þó að vöruskortur sé á staðnum. — Í þriðja lagi hefir verið bent á það, að meiri ástæða væri til að styrkja hafnargerð á Sauðárkróki en Skagaströnd. Þetta hefir ekki verið hrakið og engin rök verið færð á móti því.

Hv. þm. V.-Húnv. varpaði til mín skætingi um það, að ég hefði sýnt tvöfeldni í þessum hafnarbótamálum; hann sagði, að fjvn. í heild hefði ekki viljað mæla með því, að ríkissjóður ábyrgðist lán til bryggjugerða. En á það hefir verið bent, að í því efni er venjulega um smærri upphæðir að ræða, og því auðvelt fyrir hreppsfélög og sýslufélög að fá slík lán, þó að þau hafi ekki ríkisábyrgð á bak við sig. Þessi lán til bryggjubygginga eru venjulega nokkrir tugir þús. kr. eða í hæsta lagi um 100 þús. kr., og er oftast hægt að fá þau í peningastofnunum hér á landi. En þegar um hafnarmannvirki er að ræða, er venjulega um að ræða fleiri hundruð þús. kr. og þarf jafnan að útvega slík lán erlendis. Gagnvart þeim lánum nægir ekki ábyrgð sveitarfélaga eða kauptúna, heldur ríkisábyrgð. Að vísu er öðru máli að gegna um stærstu kaupstaðina, eins og t. d. Reykjavík og Akureyri; þeir hafa getað fengið talsverð lán erlendis, eingöngu gegn eigin ábyrgð.

Um það, hvað gerist í fjvn., get ég frætt hv. þm. V.-Húnv., að því er snertir aðstöðu nm. til einstakra mála. Hv. þm. þarf ekki að vera það barn að halda, að allir fjvnm. séu ætíð sammála um allar till. í fjárlagafrv., þó að þeir skrifi undir nál. fyrirvaralaust. Það kemur víst aldrei fyrir, að þeir séu allir sammála um alla liðina í frv. eða till. n., þó þeir skrifi ekki undir þær með fyrirvara. Ef hver þeirra ætti að gera grein fyrir sínu atkv. í hverju atriði í nál., þá myndi nál. verða heil bók og allir skrifa undir með fyrirvara. — Hv. þm. V.-Húnv. sagði, að stefna stj. í þessum málum hefði ekki komið fram í frv. hennar um hafnargerð á Skagaströnd. Hvað hefir hv. þm. fyrir sér um það? Mér er ekki kunnugt um, að stj. hafi beðið hann að flytja hér svör sín um það efni. Ég skil ekki, hverskonar öfl hafa kúgað hana til þess að flytja það frv., hafi það verið gagnstætt hennar stefnu. Og þá þykir mér skörin fara upp í bekkinn, ef ekki má líta svo á, að stefna stj. komi fram í þeim frv., sem hún flytur, heldur beri að skoða hana sem stefnulaust verkfæri annara, og má þm. V.Húnv. gleggst um það vita.

Þá sagði hv. þm. V.-Húnv., að við flm. þessa frv. værum að ota hlutaðeigandi héraði út í fyrirtæki, sem væri því fjárhagslegt ofurefli. Ég vil algerlega mótmæla því, að við þm. Skagf. séum að ota héraðinu út í eitt eða annað.

Á síðasta sýslufundi Skagafjarðarsýslu var það samþ. af öllum sýslunefndarmönnum, að einum undanskildum, sem sat hjá við atkvgr., að skora á okkur að flytja frv. til hafnarlaga fyrir Sauðárkrók. Og á fjölmennum fulltrúafundi fyrir sýsluna, sem haldinn var síðastl. haust, var samskonar ályktun samþ. með öllum greiddum atkv. Á þessum fundi voru mættir 40–50 fulltrúar, allir leiðandi menn héraðsins, hvaða flokk sem þeir fylltu. Það er því augljóst, að Skagfirðingar ganga að þessu máli vitandi vits og þurfa áreiðanlega engra leiðbeininga við frá hv. þm. V.-Húnv., hvorki sem fjárhaldsmanni eða á annan hátt.

Ég vil leiðrétta dálítinn misskilning, sem kom fram hjá hv. 4. þm. Reykv., þar sem var að tala um vandræði sveitanna af burtflutningi fólksins til kauptúnanna. Mér skildist, að hann væri að halda því fram, að ég hefði sagzt ætla með þessu hafnarlagafrv. að stöðva fólksstrauminn úr sveitunum. Það, sem ég sagði, var á þá leið, að fólksstraumurinn úr sveitunum væri öldugangur, sem ekki væri hægt að sporna við. En það skiptir vitanlega miklu máli, hvert fólkið fer og að hvert hérað geti þó eftir sem áður haldið fólkinu innan sinna vébanda. Það sorglegasta í þessu efni er það, að fólkið hnappast einkum í stærstu kaupstaði landsins. En þó að fólkið fari úr sveitunum, þá er það bót í máli, ef það tekur sér aðsetur í kauptúnum innan héraðsins. Það fólk, sem fer úr sveitum Skagafjarðar til Sauðárkróks, heldur áfram að bera sameiginlega þær byrðar, sem héraðið verður að taka á sig til þess að hrinda af stað og standa undir þeim framkvæmdum og umbótum, sem ráðizt er í til að lyfta héraðinu. Þetta ætti að vera svo ljóst, að hv. 4. þm. Reykv. skildi, hvaða gildi það hefir.

Þá vildi hv. frsm. meiri hl., 1. þm. S.-M, verja hina breyttu afstöðu sína og snúning í þessum málum, frá því að hann fylgdi frv. um hafnargerð á Skagaströnd á síðasta þingi. Hann sagðist hafa samþ. þau lög af því, að hann hefði litið á þá hafnargerð fremur sem lendingarbót en fullkomna höfn. Ef hv. frsm. meiri hl. hefir löngun til, þá skal ég fúslega ganga inn á, að hafnargerð á Sauðárkróki verði kölluð lendingarbót, ef það er það eitt, sem er í vegi fyrir því, að þm. sjái sér fært að fylgja þessu frv. á sama hátt og hann fylgdi hafnargerð á Skagaströnd. Mér er nákvæmlega sama um, hvaða nöfnum hlutirnir eru nefndir, og væri þess vegna sönn ánægja að því, ef hv. þm. vill kalla þetta mál: frv. um lendingarbót á Sauðárkróki.