11.03.1930
Neðri deild: 50. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í C-deild Alþingistíðinda. (921)
26. mál, hafnargerð á Sauðárkróki
Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):
Þetta eru einkennilegar og óviðeigandi umr. Þær snúast að mestu leyti um starfshætti sjútvn., sem ekkert varða það mál, sem fyrir liggur. Inn í þær hefir verið blandað ótilhlýðilegum söguburði af nefndarfundum, ekki sízt af hálfu hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh.: Var það ekki form.n., sem byrjaði á þeim söguburði í nál. meiri hl.?). Í nál. var hlutlaust skýrt frá meðferð n. á þessu máli, og ég verð að segja það, að hv. 2. þm. G.-K. er allra nm. ófærastur til þess að skýra frá því, sem gerist í sjútvn. Hann hefir oftar en nokkurn annan vantað á fundi n., — enda er hann, sem kunnugt er, ekki sérstaklega vel kjörinn til að skýra rétt frá. — Hv. þm. sagði, að á einni viku, sem liðið hefði á milli þess, sem hann kom á nefndarfundi, hefði n. ekki gert annað en að lesa yfir lítinn kafla úr einu frv. — frá 46. —57. gr. frv. — Nú er þess fyrst að gæta, að þessi hv. nm. kom aldrei á nefndarfundi þennan tíma, sem um er að ræða, og getur því ekkert borið um störf n. Og meira að segja: þótt skýrsla hans væri um lestur þessara 11 gr., þá sannar hún ekkert um aðgerðarleysi n. Hv. þm. veit ekkert um, hvað mörg mál n. hefir afgr. meðan hann kom ekki á fundi hennar, en bókun sýnir, að þau voru nokkur. Þetta hjal hv. þm. sannar ekkert til eða frá um það, hvaða till. eigi að samþykkja í þessu máli og hverjum eigi að víkja frá. Hv. þm. er þarna úti á þekju. Þegar sjútvn. tók þessi hafnarlagafrv. til meðferðar og hugðist að lesa þau á nefndarfundi, þá komu strax fram tvær till. um meðferð þeirra, áður en ákvörðun yrði um þau tekin hvert fyrir sig. Önnur till. kom frá hv. þm. V.-Ísf., um að afgreiða öll frv. með dagskrártill. og vísa þeim til stj., í þeim tilgangi, að samin yrði heildarlöggjöf um hafnarbyggingar. Hin till. var frá mér, um að taka upp þá eldri reglu um framlagshlutfall úr ríkissjóði og ætla honum þriðjungsframlag alls kostnaðar, en breyta til um ábyrgð hans á lánum hafnarsjóða eða héraða, svo að hún tæki til 1/3 kostnaðar, eða jafnmikillar upphæðar og framlagið. En eftir þeirri reglu myndi hlutaðeigandi hérað eða hafnarsjóður jafnan verða að standa straum af 1/3 án aðstoðar ríkissjóðs.
Þessar till. voru til umr. í n., er hv. þm. vék af fundi og gaf út nál. fyrir minni hl. n., án þess sýnt væri, að n. klofnaði eða nokkuð væri afráðið um meðferð málsins.
Um þessa óvenjulegu aðferð hv. þm. ætla ég þó ekki að ræða hér fleira að sinni eða tefja tíma með að andmæla staðleysum þeim, sem svonefndur minni hl. hefir borið hér á borð. Það yrði aðeins til þess að spilla fyrir, að málið fái fljóta afgreiðslu á þann hátt, sem meiri hl. leggur til.
Að því leyti, sem aðrir hv. þm. hafa tekið í líkan streng og hv. 2. þm. G.-K. og álasað n. fyrir slaka afgreiðslu þessa máls, þá nenni ég ekki að taka þar upp vörn; aðeins vil ég taka það fram, að þessi meiri hl. hefir unnið mjög kappsamlega og afgr. mörg mál, eins og fundabók sýnir, ásamt hv. þm. Vestm., sem hefir komið á hvern fund n.
Að því er snertir fram komin mótmæli gegn till. n., þá hefir hv. þm. V.-Húnv. svarað þeim, og það svo vel, að ég þarf þar engu við að bæta, og vil því ekki tefja tímann mikið. Þó verð ég að víkja nokkrum orðum að hv. 1. þm. Skagf. svona í góðlátlegu bróðerni. Hann reyndi að gera gys að þeirri hugmynd n. að afgreiða málið með rökstuddri dagskrá, byggðri á því, að heildarlöggjöf yrði sett um hafnargerðir almennt. Mér finnst það eiga vel við, að heildarlöggjöf sé sett um þessi efni, því að mjög breytilegt framlag frá ári til árs ruglar alla fjárhagsáætlun, og frv. þau, sem nú liggja fyrir, gera ráð fyrir framlögum, sem skipta milljónum. Ég vil hafa hemil á því, hvað lagt er árlega fram til slíks, eins og t. d. til vega, brúa og síma. (MG: Það eru engin ákvæði til um það, hversu mikið fé skuli lagt árlega til vega og brúa). Það veit ég vel, en þau framlög eru ákveðin í hvert sinn í fjárl. eftir getu ríkissjóðs, en ekki látin af hendi í svo stórum slöttum, að fjárhag landsins sé í voða stofnað.
Þá var hv. þm. að gefa mér olnbogaskot fyrir það, að ég hefði farið fram á ríkisábyrgð fyrir mitt kjördæmi. Það er að vísu rétt, að ég hefi á undanförnum þingum fengið ríkisábyrgð á 170 þús. kr. láni fyrir tvo hreppa í mínu kjördæmi vegna rafvirkjunar, og nú fer ég fram á 90 þús. kr. ríkisábyrgð fyrir fjölmennt útgerðarsamvinnufélag þar í einni stærstu verstöðinni. En sá mikli munur er á lánsábyrgðum fyrir útgerðarfélag og hafnarbyggingu, að útgerðaraukinn lýtur beint og óbeint að tekjuöflun og tekjuaukningu fyrir ríkissjóð, en hafnarvirkin miklu miður. Annars verð ég að álíta, að það sé ekki lítill munur á því hagfræðilega skoðað, hvort gengið er í ábyrgð fyrir hérað, sem gefur ríkissjóði 400–500 þús. kr. á ári í tekjur, eða hérað, sem ekki gefur nema 100 þús. kr. í tekjur. Þrátt fyrir þetta og tekjurýrðina úr Skagafjarðarsýslu hefi ég þó mælt með því, að þar verði gerðar stórfelldar og dýrar hafnarbætur, í þeirri von, að tekjurnar muni aukast og atvinnuskilyrðin batna, en hinsvegar gat ég ekki komizt hjá að vekja athygli á þessu, úr því að hv. þm. fór að drekka mér til og gera samanburð um smávægilegan stuðning við mitt hérað við stóreflis styrk og ábyrgðir fyrir hans hérað,
Hv. þm. benti á það, að illa sæti á alþm. að draga úr verklegum framkvæmdum héraða og framfarahug. Ég fæ ekki séð, að n. hafi reynt til þess. Hv. þm. getur ekki ásakað okkur, sem erum í meiri hl. n., fyrir það, að við séum að leggja höft á framfaraviðleitni hlutaðeigandi héraðs, þegar við bæði leggjum til, að veitt verði tiltölulega stór fjárupphæð til verksins og ábyrgð tekin á jafnstóru láni fyrir héraðið. Hinu neitar vitanlega enginn, að lengra hefði mátt ganga í því efni, en þó því aðeins, að ekki hefði verið tekið fullt tillit til ríkissjóðs.
Í þessu sambandi vil ég geta þess, að þær ábyrgðir á ríkissjóði, sem svona eða á svipaðan hátt eru til komnar, nema nú nokkuð á 11. millj. króna, og það er skiljanlegt, að þær geti verið þyrnar í augum útlendra lánsstofnana, sem ríkið verður að leita til.
Mér virðist sú leið, sem meiri hl. hefir valið í máli þessu, vera eðlilegur millivegur milli yztu öfga. Þriðjungsframlag og þriðjungsábyrgð frá ríkissjóði er þó ekki óverulegur stuðningur við hafnargerðir kauptúnanna. Einhver skynsamleg takmörk verður að setja um þessar framkvæmdir, ef ekki á að sökkva ríkissjóði í botnlausar ábyrgðir.
Af því að það kom fram hér í umr. í dag, að ég væri ekki sjálfum mér samkvæmur í þessu máli og hefði vikið frá yfirlýstri skoðun á síðasta þingi, þá vil ég minna á það, að í fyrra flutti ég brtt. með hv. 4. þm. Reykv., er gekk í sömu átt og nefndartill. nú, að ríkið skyldi ekki leggja fram nema 1/3 fjárins til slíkra framkvæmda sem þessara. (PO: Áður var hv. þm. búinn að samþykkja framlag til hafnargerðar á Skagaströnd). Já, með fyrirvara. (PO: Hver var sá fyrirvari?). Ég greindi frá honum í dag og sé enga ástæðu til að taka það upp aftur.
Ég gæti nú í tilefni af ýmsu því, sem fram hefir komið í þessu máli, lengt umr. til muna, ef ég kærði mig um, og ég gæti tekið upp á því sama og hv. 2. þm. G.-K., að kasta hnútum á báða bóga, til þess að fá sem flesta hv. þm. til að standa upp og láta ljós sitt skína, en ég finn enga ástæðu til þess, því að ég óska, að málið komist sem fyrst í höfn og fái afgreiðslu. Ég vil þó aðeins bæta nokkrum orðum við til hv. 2. þm. G.-K. Hann sagði við mig nýlega, er við ræddum þetta mál, að vísu undir fjögur augu —, að hann væri að mörgu leyti samþykkur meiri hl. n. og teldi till. hans hyggilegar: virðist því hér hafa slegið í baksegl hjá honum. En þótt við stundum rekumst óþægilega á, þá hefi ég það traust á mínum ágæta vini og gamla samverkamanni, að hann vilji nú standa við það, sem hann segir undir fjögur augu, og viðurkenna gönuhlaup sitt. Það kann að vera, að þessi hv. þm. þurfi af nýju að standa upp og leysa frá skjóðunni, annaðhvort til að leggja þessu máli liðsyrði eða að vinna á móti því, en ég mun láta hér staðar numið og umr. niður falla frá minni hendi.