11.03.1930
Neðri deild: 50. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í C-deild Alþingistíðinda. (922)
26. mál, hafnargerð á Sauðárkróki
Magnús Guðmundsson:
Ég tók það fram hér í deildinni, að ég liti á þessi hafnarlög eins og símalög, sem oft eru samþ. hér á þinginu eins og áætlun fyrir framtíðina. Það hefir ekki við nein rök að styðjast, að ég vilji taka allt fjárframlagið í einu upp í fjárl. Mér er ljóst, að allt verður þetta að fara eftir því, hvernig fjárhagurinn er það og það árið. Mér er það ljóst, að allt þetta verður ekki unnið á einu, tveimur eða þremur árum, heldur á nokkuð löngum tíma.
Ég vil einnig benda hv. þm. V.-Húnv. á það, að hér er ekki verið að setja ákveðna upphæð í fjárl., heldur er verið að samþykkja, að þetta verk skuli unnið þegar fé er veitt í fjárl. Þetta virtist n. ljóst í fyrra, en nú hefir hún gleymt því.
Þá talaði hv. þm. um olnbogaskot, sem ég væri að gefa sér út af ábyrgðum, sem hann hefði komið á ríkissjóð fyrir sitt kjördæmi, og sagði, að það gæfi ríkinu auknar tekjur. Orð mín við hv. þm. voru þau, að hann hefði ekki alltaf verið svona hræddur við að láta ríkissjóðinn ganga í ábyrgð fyrir héruð, a. m. k. ekki þegar Suður-Múlasýsla átti í hlut. Eða dettur hv. þm. í hug, að þetta verk auki ekki tekjurnar til muna, eða hefir hann ekki opin augun fyrir þörfum annara landshluta, af því að góðar hafnir eru á Austfjörðum? (SvÓ: Ég þekki nú ströndina nokkuð). Hv. þm. þekkir hana ekki betur í Skagafirði en ég, því að ég hefi dvalið þar í 6 ár og veit til þess, að oft hefir ekki verið hægt að afgreiða skip vegna hafnleysis, þannig að menn hafa ekki getað náð í nauðsynjavörur sínar.
Hv. þm. sagðist í fyrra hafa greitt atkv. með hafnargerð á Skagaströnd með fyrirvara, — en hver var sá fyrirvari? Hann var sá, að þar væri um lendingarbót að ræða. Þessa hafnargerð má þá eins kalla lendingarbót, og ef það er nóg til að fá fylgi hv. þm., þá skal það ekki skilja okkur.