16.04.1930
Efri deild: 82. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í C-deild Alþingistíðinda. (978)
26. mál, hafnargerð á Sauðárkróki
Frsm. 2. minni hl. (Erlingur Friðjónsson):
Þegar athuguð eru þau þrjú frv., sem hér eru á dagskrá, þá sést, að í einu frv. er hreppsfélagið skyldað til að leggja fram aðeins 1/5 hluta af kostnaði við hafnargerðina. Í öðru frv. er þetta ekki beinlínis tekið fram, en þó má skilja það svo, sem gert sé ráð fyrir um hafnargerð á Akranesi, að hlutaðeigandi hreppsfélag leggi fram allt að 1/5 hluta kostnaðar. Aftur er það svo um frv. það, sem hér liggur fyrir, hafnargerð á Sauðárkróki, að þar er ekki gert ráð fyrir, að þetta sé lagt fram undir eins við byggingu hafnarinnar, eins og þó er gert ráð fyrir í frv. um hafnargerð í Dalvík.
Þegar þessi mál voru til umr. í Nd., lýstu samflokksmenn mínir þar því yfir, að þeim þætti rétt að hafa samræmi í lögunum hvað þetta snerti. Þeir höfðu orð á því, að hægt væri að gera þessar breyt. í Ed. og svo gæti Nd. gengið að þeim breyt. Ég hefi ekki getað athugað þessi hafnarfrv. mikið, en ég hefi þó þá skoðun, sem mér finnst í raun og veru sjálfsögð, að það eigi að leitast við að hafa þar svo mikið samræmi sem auðið er. Um framlag ríkissjóðs til hafnargerða hafa gilt aðrar reglur en gert er ráð fyrir í þessum frv., þangað til samþ. var frv. í fyrra um hafnargerð á Skagaströnd. Það var sú regla, að ríkissjóður legði fram 1/3 hluta kostnaðar, en í lögunum um hafnargerð á Skagaströnd var tekin upp sú regla, að ríkið legði fram 2/5 hluta kostnaðar. Í þessu frv. er einnig gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi fram 2/5 hluta. Það er svo, að þegar einu sinni er búið að taka þá stefnu í hafnarmálunum, þá má segja, að það sé búið að fá festu sem regla, sem rétt sé að fylgja eftirleiðis. En sú regla á þá að gilda um allar hafnir, þar sem líkt stendur á. Þess vegna legg ég mikið upp úr því, að samræmi sé látið vera í öllum frv. Sé þess ekki kostur nú, álít ég betra, að þau verði ekki útrædd.
Þegar ég skrifaði mitt nál. og brtt., gerði ég mér von um, að frv. mundi ná fram að ganga á þessu þingi. Hv. þm. hefðu með sameinuðum vilja vel getað afgr. þessi mál með líkum afbrigðum og svo mörg önnur mál, sem afgr. hafa verið nú síðustu daga. Það sýnist liggja mjög beint við að afgreiða öll þessi frv. nú án breyt., en ég vil heldur, að það dragist einu árinu lengur og verði að lokum gengið svo frá þessum málum, að við megum vel við una í framtíðinni. Það er miklu betra en að láta það fara eins og verkast vill, hvernig þau hafnarlög eru, sem eru afgr. í hvert sinn, og svo er ekki samræmi í neinu.
Þessi litla breyt., sem ég fer fram á að gerð sé, er í 2. gr. í frv. um hafnargerð á Sauðárkróki. Þar er svo ákveðið, að ríkissjóður skuli ábyrgjast allt að 370 þús. kr., en brtt. ákveður, að ríkissjóður ábyrgist 2/3 hluta, allt að 250 þús. kr. Þá er eftir 1/5 hluti kostnaðar við höfnina, og ætlast ég svo til, að hlutaðeigandi kaupstaður leggi það fé fram um leið og byrjað er á verkinu, eins og gert er ráð fyrir í frv. um hafnargerð í Dalvík.
Ég endurtek það, sem ég sagði áðan, að ég álít nauðsynlegt að hafa samræmi í þessum lögum, þannig að ríkissjóður leggi fyrst fram 2/5 og í annan stað ábyrgist 2/5, en hlutaðeigandi kaupstaður leggi fram 1/5, þegar verkið er hafið.
Það má náttúrlega segja með gildum rökum, að þar sem á að byggja svona hafnir, séu menn oft mjög fátækir og geti því ekki lagt fram svona mikið fé, en þeim er þó vitanlega ætlað að greiða 3/5 hluta kostnaðarins í framtíðinni. En ég held, að ef þeir geta ekki á einhvern hátt útvegað 1/5 hluta af því, sem þarf til hafnargerðarinnar, án hjálpar ríkissjóðs, annaðhvort tekið það hjá sjálfum sér eða fengið lán hjálparlaust, þá sé ekki rétt fyrir þau héruð að leggja út í eins dýr mannvirki og þessar hafnargerðir eru. Ég er hræddur um, að þau héruð geti ekki risið undir þeim kostnaði.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta. Þessi framsöguræða getur gilt sem framsaga fyrir öll þessi 3 hafnarmál, sem eru hér á dagskrá.
Hv. þm. hefir lýst andstöðu sinni gegn þeim brtt., sem ég hefi flutt við frv. En ég man ekki betur en að þegar ég minntist á þessar brtt. á nefndarfundi, að hv. þm. segði þá, að hann væri ekki ráðinn í því, hvort hann greiddi þeim atkv. sitt eða ekki. (HSteins: Nei, þetta er ekki rétt). En hv. þm. er fullráðinn í að vera á móti þeim nú; ég geri ráð fyrir, að það hafi kannske að nokkru leyti hert hans aðstöðu gegn þessum brtt., að líkurnar eru nú mun minni til þess að frv. nái fram að ganga á þessu þingi en þegar n. talaði um þessi mál, og ég hefi mjög svo vel skilið, að hv. þm. telji sér meiri ástæðu til að vera á móti þessum brtt., fyrst aðstaðan hefir dálítið breytzt hvað þetta snertir.
En þar sem hv. þm. var að minnast á Vestmannaeyjar sem dæmi þess, hve höfnin þar hefði lyft útveginum mikið, þá geri ég ráð fyrir, að þetta sé mjög rétt hjá hv. þm., en ég hygg, að útvegur Vestmannaeyja hafi þó verið allmjög vaxinn, þegar þeir byrjuðu á sinni hafnargerð. Ég tel það víst, að áður en hún kom að nokkrum verulegum notum, hafi útvegur þeirra verið allstór, og ef þeir eru færir um að leggja fram um 200 þús. kr. í hafnarsjóð sinn, sem ég hygg, að þeir leggi nú fram árlega til endurbóta á hafnargerðum sínum, þá tel ég, að þeir hafi verið færir um að leggja nokkuð til áður en höfnin var gerð þar, og það tel ég um staði, þar sem hafnir eru gerðar, að möguleikar séu til að vera annaðhvort búnir að safna nokkru fé, ellegar að skyndilega sé hægt að safna nokkru fé. En það vill almennt reynast svo, að það er léttast að ná fjársöfnun til eins og annars, áður en hafið er verk, sem almennur áhugi er fyrir; áhuginn vill frekar dofna eftir að verkið er hafið, svo að ég held, að það sé ekki óbyggilegur búskapur hjá ríkinu, sem á að leggja fram mikið fé og miklar ábyrgðir, að ríkissjóður eða Alþingi fyrir hans hönd geri nokkrar kröfur um það, að til sé eitthvað hjá þessum þorpum, áður en lagt er í verkið.
Nú vill svo vel til hjá tveimur af þeim stöðum, sem hér er verið að ræða um, að á öðrum staðnum, Akranesi, mun vera búið að safna nokkru fé, og í frv. um hafnargerð í Dalvík er gert ráð fyrir fimmtungsframlagi frá Svarfaðardalshreppi. Þetta ákvæði ætti því ekki að standa neitt í vegi fyrir því, að hafnargerð á Akranesi yrði framkvæmd strax, þó að sett væri inn í hafnarl. þar slíkt ákvæði og er í hafnarlögunum um Dalvík. Það má kannske segja, að það sé ósanngjarnt að gera þá kröfu til Sauðárkróks, sem gerð er til Dalvíkur, en samræmisins vegna held ég, að Alþingi geti ekki gert einum stað hærri kröfu en öðrum. Ég hygg því, að með engum rökum verði mælt á móti því, að það sé rétt að láta eitt og sama ganga yfir þessa staði alla, sem hér hefir verið rætt um.