30.03.1931
Efri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í C-deild Alþingistíðinda. (1006)
21. mál, innflutningur á sauðfé
Jón Baldvinsson:
Það er rétt hjá hv. frsm., að það er einróma till. n.; að frv. verði samþ. Aðeins hefi ég ekki viljað ganga eins langt og samn.menn mínir, um að auka þá heimild til innflutnings á erlendu fé, sem þeir bera fram tillögu um. Ástæður mínar eru þær, að mér virðist við eiga að gera tilraun um innflutning til þess að bæta holdafjárkynið. En ég vil ekki láta flytja inn fé til framleiðslu á „lúxus“vöru, en það fer till. n. fram á, þar sem hún vill leyfa innflutning á karakulafé. Ennfremur virðist mér fjárhagslegur ávinningur að því að flytja inn þetta fé ekki eins mikill og af innflutningi á holdafjárkyni. Eftir því, sem dýralæknir upplýsti fyrir n., má gera ráð fyrir, að skinnin af nýfæddum lömbum mundu vera a. m. k. 10–20 kr. virði. En mér skilst, að sá ávinningur, sem bændur kynnu að hafa af þessu, sé ekki svo mikill sem gróði af dilkum til frálags að haustlagi, því að kostnaður er ekki heldur mikill frá vori og þangað til hægt er að gera sér fé úr dilkunum. En hinsvegar er áhættutími á milli, lömbin geta drepizt á vorin og skinnin orðið lítilsvirði.
Ég er ekki viss um, að það sé rétt leið til þess að bæta úr þessum slæma kvilla, fjöruskjögri í lömbum, að flytja inn þetta útlenda fé og slátra lömbunum nýfæddum, eða eins og dýralæknir taldi verðmest, að féð væri drepið, áður en lömbin fæddust. Það er ekki ábatasamt, heldur er hin leiðin betri, að finna ráð til þess að koma í veg fyrir fjöruskjögur, sem sennilegt er, að vísindamönnum takist von bráðar. Íslenzkur vísindamaður, sem dvelur í Kaupmannahöfn, Skúli Guðjónsson, hefir fengizt við þessar rannsóknir og talið er að honum hafi orðið mikið ágengt.
En þótt ég leggist á móti till. meiri hl. n. um aukinn innflutning, þá geri ég það ekki að neinu kappsmáli. Mér fannst ég ekki sjá neinn verulegan ávinning við þetta. Dýralæknir sagði líka við n., að hann væri hræddari við innflutning frá Mið-Evrópu heldur en Skotlandi.
Af þessum ástæðum ætla ég að greiða atkvæði á móti þeim till. n. á þskj. 286, sem snerta innflutning á þýzku fé. Hinsvegar er ég n. sammála um að binda ekki sóttkvíunartímann við 2 ár, eins og í frv. er gert, og vil heldur hafa það orðalag, sem n. ber fram.
Þetta var sá fyrirvari, er ég hafði gagnvart þessu máli.