19.02.1931
Efri deild: 4. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í C-deild Alþingistíðinda. (1018)

22. mál, bókhald

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Þetta frv. lá fyrir þessari hv. d. í fyrra vetur og var samþ. þar lítið breytt. En það var seint fram komið og náði því ekki að ganga gegnum Nd. Nú var það lagt fyrir eins og hv. Ed. samþ. það í fyrra.

Ég vil vísa til aths. við frv. og sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um það, en legg til, að því verði vísað til allshn. að lokinni umr.