30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

13. mál, tilbúinn áburður

Lárus Helgason:

Ég skal ekki tefja umr. að ráði, enda hefir hv. frsm. reifað málið til nokkurrar hlítar, og þarf ég litlu við að bæta. Ég vil einungis segja það, að mér er alveg óskiljanlegt, hvernig hv. þm. V.-Húnv. fer að blanda saman þessu frv. og byggingar- og landnámssjóði. Ég sé ekki, að það tvennt sé nokkuð skylt. Ég sé enga skynsamlega ástæðu til þess, að þótt bændur eigi erfitt um flutning byggingarefnis, þá þurfi endilega að gilda hið sama um þessa voru. Þeir menn, sem styrksins eiga að njóta samkv. þessu frv., eiga að jafnaði erfitt með alla flutninga, en þetta frv. miðar til þess að létta undir með þeim um flutning þessarar vörutegundar, meðfram til þess að stuðla að aukinni notkun hennar, túnræktinni til eflingar. Hér er þess vegna bæði um sanngirnis- og nauðsynjamál að ræða, og mun ég ekki trúa því, fyrr en ég tek á, að hv. þdm. geti fengið af sér að bregða fæti fyrir þetta sjálfsagða mál.