30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (107)
13. mál, tilbúinn áburður
Pétur Ottesen:
Út af ummælum hv. þm. V.-Húnv., að þessi styrkur skipti engu verulegu máli fyrir bændur, sem langt eiga að flytja, þá nær slíkt vitanlega engri átt. Það er vitanlegt, að flutningskostnaður áburðarins á landi er sumstaðar margfaldur við það, sem kostar að flytja hann frá útlöndum og hingað upp til hafna. Og ef hv. þm. V.-Húnv. á annað borð viðurkennir, að styrkur til áburðarflutnings sé nokkurs virði fyrir þá, sem kaupa áburðinn, þá hlýtur hann að játa, að það er réttlátast, að þeir njóti hans hlutfallslega við aðra, sem lengst þurfa að flytja og oft og löngum um slæma vegi. Í þær sveitir, sem fjærst liggja kaupstöðunum, er flutningskostnaðurinn svo mikill, að hann fer hatt upp í verð áburðarins sjálfs. T. d. kostar 9 kr. að flytja tunnu af áburði frá Reykjavík austur í Hreppa. Hv. þm. vill, að þeir, sem næst búa kaupstöðunum, fái allan flutningskostnað greiddan, en hinir, sem lengra eiga að flytja, ekki nema lítinn hluta. En ég vil leyfa mér að mæla á móti slíkum tillögum, sem eru freklega ósanngjarnar og óeðlilegar.
Hv. þm. talaði um það, að afstaða mín til þessa máls væri aðeins fyrirsláttur. Þetta er með öllu rangt; ég hefi sýnt það í verkinu, að mér er það fullkomið alvörumál, að styrkurinn til áburðarflutningsins komi sem réttlátlegast niður. En skilsmunurinn er, að hv. þm. V.-Húnv. brestur sanngirni til þess að fylgja mér í þessu, og getur ekki hafið sig upp úr þeirri þröngsýni að miða allt við sjálfan sig og þá, sem eins er ástatt um og hann, að þeir búa í kauptúnum.