09.03.1931
Efri deild: 19. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í C-deild Alþingistíðinda. (1081)

102. mál, myntlög

Fjmrh. (Einar Árnason):

Hv. 1. landsk. talaði um það í upphafi ræðu sinnar, að núv. stj. hefði sýnt lítinn áhuga á því, að koma gengismálinu fram á yfirstandandi kjörtímabili. Ég veit, að það er bæði honum og öðrum ljóst, hvernig þetta mál stóð í byrjun kjörtímabilsins. Afstaðan til þess skipti mönnum í tvo alveg andstæða flokka og samkomulag var þá óhugsandi. Hinsvegar ber á það að líta, að stj. taldi málinu óhætt, meðan núv. stjórnarflokkur fer með völdin. Og hún áleit ekki leggjandi út í harðan bardaga um úrlausn þess, meðan hugir manna voru jafn einstrengingslegir gagnvart því, eins og þeir voru fyrst eftir að hún tók við völdunum.

Nú hefir þetta mikið breytzt. Hinum raunverulegu hækkunarmönnum er alltaf að fækka. Margir, sem áður voru ákveðnir hækkunarmenn, telja nú, að eigi komi til mála að hækka krónuna á þann hátt, sem áður var gert ráð fyrir. Þeir eru að færast nær og nær þeirri úrlausn málsins, sem frv. það, er nú liggur fyrir, gerir ráð fyrir. Þess vegna finnst mér engin fjarstæða að vona, að samkomulag náist um þetta frv. nú, og að því lutu orð mín áðan.

Annars gekk mestur hluti af ræðu hv. 1. landsk. út á það, að telja mönnum trú um, að próf. Cassel væri ekki sá maður, sem mark mætti taka á í þessu efni. En ég veit nú ekki betur en að hv. þm. hafi sjálfur stuðzt mjög við rit próf. Cassels og tekið hann sér til fyrirmyndar, þegar hann hefir ritað um fjárhags- og gengismal. (JBald: Það nota allir próf. Cassel). nú er auðheyrt, að leiðir þeirra eru skildar, og skal ég auðvitað ekki deila um það út af fyrir sig. nú telur hv. þm. próf. Cassel hafa beðið eintóma ósigra í gengismálinu. (JÞ: Ekki í því, er hann hefir haldið fram um gengismalið). Hv. þm. talaði um stýfingu, og það er nú alltaf sett í samband við gengismálið.

Hv. þm. minntist á, að Svíar, Danir og Norðmenn hefðu hækkað sína krónu. Það er nú um Svía að segja, að þeirra króna fell nú aldrei mikið. (JÞ: hún varð þó lægri en okkar króna). Og veit hv. þm., hvort Danir og Norðmenn hafa nokkuð grætt á hækkuninni? Vilji hann sanna, að þeir hafi eitthvað grætt á hækkun krónunnar, verður hann að koma með einhvern samanburð um það efni.

Ræða hv. 1. landsk. hné mjög í sömu átt nú og þegar hann mælti fyrir myntlaga frv. sínu, og þegar hann hefir áður ritað og rætt um gengismálið. Aðalröksemd hans er alltaf hin sama: varðveizla sparisjóðsfjár. Hann talaði um, að sparifjáreigendur gætu ekki trúað bönkunum fyrir fé sínu, ef búast mætti við, að ríkið léti stýfa krónuna. Hann taldi, að þegar einu sinni væri búið að stýfa, væri engin trygging fyrir því, að það yrði ekki gert aftur. Það er rétt. En ég vil þá spyrja: hvaða trygging er fyrir því, að ekki geti einhverntíma komið fyrir að krónan verði stýfð, þó að hún væri hækkuð upp í gullgengi nú?

Mér finnst það heldur óviðkunnanlegt, að hv. 1. landsk. er alltaf að ala á því öðru hvoru hér á Alþingi, hvað miklar líkur séu til þess, að menn hér flytji fé sitt burt úr landinu. Það er eins og hann sé alltaf að minna á það, að ef löggjafarvaldið geri einhverjar ráðstafanir, er snerta peningamálin, þá séu menn ávalt reiðubúnir að flytja fé sitt til útlanda.

Ég sé ekki ástæðu til að deila um einstök atriði málsins að svo komnu. Ég tel sjálfsagt, að þessu frv. verði vísað til n. eins og hinu verðfestingarfrv., svo að hv. þm. gefist næði til að athuga það gaumgæfilega.