19.02.1931
Neðri deild: 4. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í C-deild Alþingistíðinda. (1107)
6. mál, tollalög
Magnús Guðmundsson:
Ég ætla ekki að tefja hv. deild á langri ræðu. En út af fyrirspurn hv. þm. Vestm. vil ég geta þess, að nefndin hefir litið svo á, að ef frv. þessi verða að lögum, þá muni þau gefa ríkissjóði líkar tekjur og nú á sér stað, eða kannske freklega það. Og eins og nú horfir við um afkomu ríkissjóðs, þá er hvorki hægt að sleppa neinu af þeim tollum, sem nú eru í gildi, né lækka þá. Ríkissjóði mun ekki veita af sínu á næstu árum, eftir því sem fjárhag hans er komið. Og þó að segja megi, að með frv. þessu sé verið að lögfesta gengisviðaukann, þá má alltaf breyta til síðar, ef þingið sér sér fært, og lækka þá tollana, t. d. um það, sem gengisviðaukanum nemur.
Það er satt, að margar breytingarnar eru í því fólgnar að færa ýmsar vörutegundir milli sérstakra flokka. Og þó að það sé ef til vill ekki allt rétt, eins og hv. þm. Ísaf. sagði, þá er það ekki ranglatara en áður var. Annars má lengi deila um einstök atriði eins og það, hvort rétt sé að setja þessar vörutegundir í þennan flokk eða hinn. Og nefndin mun heldur ekki standa á móti öllum breytingum, sem kunna að verða gerðar. Enda eru það ekki mótmæli gegn frv., þótt finna megi að slíkri niðurröðun og till. verði gerðar um tilfærslur einstakra vörutegunda á milli liða.
Áður en ég sezt niður, vildi ég leiðrétta misskilning, sem kom fram í ræðu hv. þm. Ísaf. Hann vildi halda því fram, að beinu skattarnir væru aðeins tekju- og eignarskattur, og þeir næmu ekki nema 10% af öllum tekjum ríkissjóðs. En það var sýnt fram á það í fyrra af meðnefndarm. mínum, hv. 1. þm. N.-M., að beinu skattarnir eru um helmingur af öllum tekjum ríkissjóðs. Og vil ég þá fyrir mitt leyti segja, að ekki sé hægt á sanngjarnari hátt að láta þessar tvær stefnur mætast — beina og óbeina skatta — en nú er gert.