19.02.1931
Neðri deild: 4. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í C-deild Alþingistíðinda. (1108)
6. mál, tollalög
Magnús Jónsson:
Það eru aðeins örfá orð til hæstv. fjmrh. Hann fór alls ekkert út í að reyna að verja hina hræðilegu útkomu á ríkisrekstrinum, sem fjármálaskammsýni og óvit hæstv. stj. hefir leitt yfir þjóðina. En þetta er einmitt nú að koma í ljós, þar sem hæstv. stj. verður að heimta meira, þegar herðir að og kreppa dynur yfir, og getur þó ekki látið framkvæma neitt. En í staðinn fyrir að fara út í þessa sálma, fer hæstv. fjmrh. að brýna mig á háum vöxtum. Ég minntist ekkert á háa eða lága vexti. Ég tók aðeins líkingu um seðlabankana og benti á, að þeir hefðu háa vexti þegar mikil eftirspurn væri eftir peningum, en lækkuðu svo vexti þegar kreppan kæmi. Og eins ætti stj. að fara að: Þegar mikil góðæri eru, vil ég geyma gjaldþolið, ekki í jöfnunarsjóði, eins og hv. þm. Ísaf., heldur í sjálfum atvinnuvegunum, með því að gera þá traustari.
Hæstv. fjmrh. spurði, hvers vegna ég lækkaði ekki vextina. Ég skil ekkert í þessum misskilningi ráðherrans. Ég svaraði aðeins því, sem hæstv. forsrh. skaut fram í í fyrri ræðu minni.
Annars er ekki nema gott til þess að vita, að hæstv. stj. er orðin svona bljúg og viðurkennir nú, að hún ráði engu um vextina. Annað söng þó í þessum sömu mönnum fyrir síðustu kosningar. Þá var því óspart haldið að þjóðinni, að þeir þyrftu að komast í valdasessinn og þá mundu vextirnir verða lækkaðir samstundis. Hvað er nú orðið af stóru orðunum og öllum loforðunum, sem þá vöru gefin?
Annars er það barnaskapur hjá hæstv. fjmrh. að halda, að það sé bankaráðið, sem ráði vöxtunum. Það er fjármálaástandið á hverjum tíma, sem ræður þeim. Ég get ekki skilið, hverskonar mannhundar væru þá í bankaráðum veraldarinnar, ef þeir skrifuðu upp vextina eftir eigin geðþótta. Það er ástandið í landinu, sem skapar háa eða lága vexti. Ég veit ekki til, að þær ástæður séu fyrir hendi, að hægt sé að lækka vextina. En það getur verið, að þessari fjármálastjórn, sem við eigum við að búa, takist að koma ríkissjóðnum í það öngþveiti, að vextir lækki. Lágir vextir bera ekki vott um mikla velgengni, heldur hnignun.
Hæstv. fjmrh. talaði fagurlega um það, hvernig ég safnaði undir vængi mína öllum þeim, sem bágt eiga. Ég sé á ollu, að hann á bágt, eins og líka er von, þar sem hann verður að bera ábyrgð á þessu óskaplega ástandi, sem hann á þó sennilega litla sök á.