04.03.1931
Neðri deild: 15. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í C-deild Alþingistíðinda. (1110)
6. mál, tollalög
Frsm. (Halldór Stefánsson):
Við flutning þessa máls og grg. þess hafa verið færðar fram ástæðurnar fyrir þessu frv. Frv. hefir nú verið athugað í n., og meiri hl. n. fallizt á það; en einn nefndarmanna var veikur og átti því engan þátt í afgreiðslu þess. Til athugunar í n. kom einnig annað frv. um sama efni að nokkru leyti, frá hv. þm. Ísaf., sem komið hafði fram siðar. Ber að skilja svo, að n. hafi með afgreiðslu þessa frv. einnig tekið afstöðu til frv. hv. þm. Ísaf.
Þetta er í sjálfu sér ofureinfalt mál. Það eru einungis tvo atriði, sem tillit þarf að taka til: 1) Hvort rétt sé að setja í samfellda heild þau lagaákvæði, sem að þessu lúta. 2) Hvort rétt sé að festa gengisviðauka þann, sem fylgt hefir tolllogunum nú um hríð, til viðbótar frumtollinum.
Gengisviðaukinn var lögfestur á þinginu 1924. Var það gert til þess að hamla nokkuð á móti rýrnun þeirri, sem þá var orðin á peningunum. Hann var settur til bráðabirgða, vegna þess, að ekki þótti sýnt, hvernig fara mundi um gengið og gildi peninganna. Hefir hann svo verið framlengdur alla tíð síðan. Nú má telja útsáð um það, að gengi krónunnar verði raskað frá því, sem nú er. Afstaða þingsins til gengismálsins er slík. Sýnist því rétt að festa gengisviðaukann í sjálfum lögunum og komast með því hjá, tvennskonar ákvörðunum um sama tollinn.
Eins og ég gat um aðan, þá kom frv. hv. þm. Ósaf. til umtals í n. — þótt það frv. liggi ekki fyrir til umr. nú, þá eru þó meginrök þess svo tengd þessu frv., að vel má ræða þau í sambandi við það. Um það verður varla deilt, að tollar á óhófs- og munaðarvörum eru einhverjir sjálfsögðustu og réttlátustu tekjustofnarnir. Það er vegna þess, að svo má segja, að þann toll þurfi ekki aðrir að greiða en þeir, sem vilja. Þetta mun mega teljast alviðurkennt. Þess vegna var munaðarvaran sú vörutegund, sem fyrst var tolluð hér á landi sem viða annarsstaðar. Um réttmæti þessa tollstofns eru allir sammála. En um hitt hefir verið og er ágreiningur, hvað telja skuli munaðarvörur. Svo er það t. d. um kaffi og sykur. Sumir telja þær tegundir óhjákvæmilegar nauðsynjavörur. Það er að vísu satt, að þjóðin er nú búin að venja sig á mikla neyzlu á þessum vörum. En á það ber þó að líta, að áður fyrri hafði þjóðin nálega ekkert af þessum vörum að segja og lifði þá engu óheilbrigðara lifi en nú, heldur þvert á móti. — Ýmsir læknar halda því líka fram, að þó að sykur sé í sjálfu sér góð vara og næringarrík, þá sé þó ofnautn sykurs líkamanum skaðleg. Sykrið brennur í líkama mannsins líkt og áfengi, og þá sennilega með líkum verkunum á líkamann. Er þessi skoðun því sennileg. Ég skal þó eigi um þetta dæma til fullnustu.
Í ritum Hagstofu Íslands er m. a. skýrsla um sykurnotkun landsmanna tæp síðastliðin 50 ár, eða frá 1880–1928. Fyrsta áratuginn af þessu tímabili var sykureyðslan 7–8 kg. á mann að meðaltali. Vitanlega var hún minni þar áður. Um aldamótin var hún orðin nál. 15 kg. 1928 var hún 38–39 kg. á mann. Af þessum tölum er það auðséð, að mikið af innfluttum sykri er notað sem óhófsvara. Og þótt sykur sé ríkur af næringarefnum, þá má fá sömu næringarefni í öðrum vörum á ódýrari hátt og hollari. Þegar hv. flm. hins frv. bar það fram, þá færði hann sem aðalástæðu fyrir því að lækka sykur og kaffitollinn, að sá tollur væri hærri, miðað við verðmæti, en tollur á skrautmunum. Þetta er rétt. Hv. flm. gat þess einnig og það með réttu, að tollur af kaffi og sykri væri hlutfallslega hærri nú en í fyrra. Þetta hvorttveggja er mjög eðlilegt, þar sem þetta eru þungatollar, sem verða hlutfallslega við verðið því hærri, sem varan, sem hann er lagður á, er lægri í verði. Um sykurtollinn var þetta athugað í mþn. árið 1928, reiknað út eftir verðlagning 1925. Eftir því var hann þá tæplega 30% af kaupverði. Að tollurinn er hlutfallslega hærri nú, sýnir einungis það, að sykur hefir lækkað í verði síðan. En sú er þó bót í máli, að eftir því sem kaupverðið er lægra, eftir því ætti að vera hægra fyrir neytendur að borga tollinn. Hann er einn og hinn sami. Þá vildi sami hv. þm. draga dár að því, hve óheyrilegt og fáránlegt það væri að hafa þessa tolla hærri, miðað við verðmæti, en t. d. á skrautgripum. Það er að vísu nokkuð til í þessu, út af fyrir sig, en ástæðan fyrir því að hafa ekki glysvörutollinn hærri er eingöngu sú, að hætt er við, að hærri tollun á þessum vörum bæri ekki tilætlaðan árangur til tekjuauka. Slíkur varningur er fyrirferðarlítill og auðvelt að koma honum undan skatti með ýmsum undanbrögðum. Ef tollurinn væri settur svo hátt, sem maklegt væri, þá myndi það freista manna um of til tollsvika, og tollurinn yrði ef til vill engu meiri, sem til skila kæmi. — Um kaffi- og sykurtollinn er öðru máli að gegna. Þar er um vöru að ræða, sem erfitt er að koma undan til tollgreiðslu, enda gefur bæði miklar og vissar tekjur, sem segja má, að þeir séu maklegir að greiða, sem nota þessar vörur óhóflega mikið. Ég vil þá líka benda hv. þm. á það, að samkv. frv. hans ætlast hann til, að sykurtollurinn verði 10 aurar á kg. sé nú byggt á útreikningum hans, þá er það þó 60–70% verðtollur, eins og verðlag er nú, nál. helmingi hærri en glysvörutollurinn, sem hann talaði mest um. Háðglósur hans til ámælis stj. og þeim öðrum, sem frv. fylgja, slá hann sjálfan líka. Þessi flekklausi maður í tolla- og skattamálum, sem þykist vera, leggur sjálfur til, að sykurtollurinn sé helmingi hærri en á skrautgripum, miðað við verðmæti ! Þetta með öðru sýnir, að hann flytur þetta frv. sitt og aðrar till. í þessum málum eingöngu til þess að veiða menn í hina veilu röksemdafærslu sína.
Þá gerði hv. þm. samanburð við nágrannalöndin á þessum tollum og gat þess, að þeir væru hærri hér en þar, að undanteknu því, að sykurtollurinn er hærri í Noregi en hér. Þetta hefir í sjálfu sér litla þýðingu, þarfirnar eru misjafnar, ástæðurnar einnig og sjónarmiðin, og hvert ríki hagar þessu hjá sér eftir sínum ástæðum.
Ég hefi áður minnzt á hina óhóflegu og ef til vill skaðlegu sykurneyzlu. Mér þykir geta komið til mála að tolla hann sérstaklega hátt, beinlínis til varúðar og varnaðar gegn hinni óhóflegu neyzlu. Tollur á kaffi og sykri er nú og eftir till. frv. eins og hann var fyrir stríð og hefir eiginlega dregizt aftur úr öðrum munaðarvörutollum, þar sem gengisviðaukinn hefir verið felldur niður á þessum vörum á einum tíma, sem hann er latinn haldast við á öðrum. Ég hefi þá stuttlega gert grein fyrir ástæðum fyrir till. frv. og leyfi ég mér að leggja til, að að þessari umr. lokinni, verði málinu vísað til 3. umr.