30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í B-deild Alþingistíðinda. (112)
13. mál, tilbúinn áburður
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég hefi nú um hríð, meðan mál þetta hefir verið rætt, verð bundinn við umr. í Ed. og veit því ekki, hvað búið er að tala í málinu hér. Ég vil aðeins bera fram þakklæti mitt til landbn. fyrir það, að hún hefir einróma fallizt á þetta frv.
Ég vildi þó aðeins geta þess, sem frsm. ef til vill hefir tekið fram, að þetta mál var rætt mjög ýtarlega á nýafstöðnu búnaðarþingi og að þessi brtt. hv. n. um styrk til þeirra manna, er þurfa að fá áburðinn fluttan meira en 35 km. veg, er mjög nálægt því, sem þar var samþ. að leggja til.
Þá vil ég minnast á það fyrirkomulag um afgreiðslu á áburðinum, sem verður eftir brtt. n. og einnig samkv. því, sem búnaðarþingið lagði til að tekið væri upp, eftir leiðbeiningum frá þeim ráðunaut Búnaðarfélagsins, er mest hefir um þetta fjallað. má telja vist, að þetta fyrirkomulag verði betra heldur en það, sem gilt hefir síðan 1929 og reyndist vafningasamt og erfitt fyrir einkasöluna. Eins og kunnugt er, var felld í Ed. till. um 30 km. lágmark fyrir styrkinn, en ég býst við, að deildin muni samt fallast á þessa till. um að hafa lágmarkið 35 km., ef það verður samþ. hér í Nd.