30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (113)
13. mál, tilbúinn áburður
Sigurður Eggerz:
Ég vildi vekja athygli hv. landbn. á því, að með því að ákveða skilyrði fyrir flutningsstyrk svona hátt, 35 km., þá verða sum héruð alveg útilokuð frá því að njóta þessa styrks; þannig er það um mitt kjördæmi. Úr því að n. vill ekki ganga inn á að lækka takmarkið, mun ég flytja brtt. um lækkun á því við 3. umr. Mér þykir það hart, ef gera á mitt kjördæmi að slíkri hornreku, sem er þó eitt bezta landbúnaðarhérað á landinu.