11.03.1931
Neðri deild: 21. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í C-deild Alþingistíðinda. (1159)

8. mál, vitagjald

Jón Sigurðsson:

Það þykir e. t. v. einkennilegt, að ég, sem er sveitabóndi, skuli taka til máls í slíku máli sem þessu. En mér finnst þær till., sem fram eru komnar, talsvert varhugaverðar. Þó ég játi, að nauðsynin á að endurbæta vitakerfi landsins sé tvímælalaus, þá vil ég taka undir það með hæstv. fjmrh., að ég kann illa við að binda tekjur ríkissjóðs til ákveðinna framkvæmda í eitt skipti fyrir öll. Við skulum hugsa okkur, að einhverntíma yrði svo þröngt í búi, að ríkissjóður gæti engar framkvæmdir látið gera og ætti jafnvel erfitt með að standa í skilum. Eftir till. hv. sjútvn. væri ríkið samt skyldugt til að byggja vita, þó að það væri þá engan veginn eins aðkallandi eins og margt annað.

Hefði reynslan sýnt, að vitagjöldin væru misnotuð, að þeim væri yfirleitt varið til einhvers annars en vitamálanna, þá væri ofurlítil ástæða til að ákveða með lögum, til hvers þeim skuli varið. Það vill nú svo vel til, að ég hefi nýlega seð nál. þeirrar mþn., sem falið var að athuga þetta mál. Hún hefir tekið sér fyrir hendur að athuga, hvað mikið ríkið hefir á undanförnum áratugum lagt til vitamálanna og hvað mikið hefir komið inn í vitagjöldum. Henni reiknast svo til, að árið 1923 hafi ríkið verið búið að leggja 800 þús. kr. meira til vitamálanna heldur en það hafði fengið inn í vitagjöldum. Síðan hefir þessi mismunur smátt og smátt farið minnkandi, og nú munu upphæðirnar nokkurnveginn standa í járnum. Þegar þetta er athugað, virðist ekki sérstök átæða til að lögákveða nú, að vitagjaldinu skuli eingöngu varið til vitamálanna. mér finnst full ástæða til að vænta, að þingið sýni þeim málum framvegis sanngirni og skilning, eins og upplýsingar mþn. sýna, að það hefir gert að undanförnu.

Hv. sjútvn. mun telja það skyldu sína að gæta hagsmuna sjávarútvegsins í þessu máli, og er það ekki nema eðlilegt. En ég held, að eins og nú standa sakir sé brtt. hennar óþörf. Þingið veitir til vitamálanna sum árin meira og sum minna heldur en inn kemur í vitagjöldum, svo að þegar til lengdar lætur, jafnar það sig upp, enda er ráð eðlilegasta leiðin í þessu máli.