27.03.1931
Neðri deild: 35. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 966 í C-deild Alþingistíðinda. (1168)

148. mál, ríkisútgáfa skólabóka

Flm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Í raun og veru kom ekki nema eitt nýtt fram í ræðu hv. þm., og það var það, sem snýr að ritlaunum og útgáfu bóka. Mér hefir verið sagt af þeim, sem hafa kynnt sér þetta mál, að þeir, sem skrifuðu skólabækur, fengju nokkurn veginn trygg ritlaun fyrir samning slíkra verka, og líklega betri laun en menn eiga að venjast hér á landi fyrir skrif sín. Er jafnvel haldið fram, að ritlaunin muni vera þetta frá 100–300 kr. á hverja örk. Hv. þm. veit kannske betur en ég, hve ritlaunin eru há hér í þessu landi almennt, en ég býst við, að menn séu vel sæmdir af slíkum ritlaunum. Því er þannig varið, að við endurútgáfu bóka fá þeir, sem upphaflega hafa skrifað þær, sömu ritlaunin og við frumprentun. Ef bók er oft gefin út, endurtaka ritlaunin sig við hverja útgáfu.

Þá vildi hv. þm. gera mikið úr því, að menn, sem væru í bókanefndunum, myndu verða svo þröngsýnir, að þeir gæfu eingöngu út einhliða bækur. En ég lít svo á, að til fræðslumála veljist þeir menn, sem við trúum bezt til þeirra hluta. Svo að þessi ótti, að hér yrði um mikla þröngsýni að ræða af hendi nefndanna, er í mínum augum aðeins hugarburður. Ég óttast ekki, að í þessi störf veljist svo hættulegir menn, að okkar andlega lífi stafi nokkur hætta af á þessu sviði.

Ég hefi aðrar skoðanir en hv. þm. í þessu máli, en ég skal þó ekki frekar deila við hann. Við erum sitt á hvoru máli um það, hvort nauðsynlegt sé að láta bóksala hafa úthlutun bóka á hendi eða ekki. Ég álít það hvorki rétt né nauðsynlegt, eins og ég hefi svo oft tekið fram. Í þessu máli sem öðrum met ég meira almenningsheill en hagsmuni örfárra manna. Um það er deilan milli mín og hv. þm., — um þá eitt og ekkert annað.