25.03.1931
Efri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í C-deild Alþingistíðinda. (1195)
8. mál, vitagjald
Jón Baldvinsson:
Ég hefi skrifað á nál., að ég er andvígur frv. Stj. ber nú fram nokkur frv., er fara fram á það, að lögfesta gengisviðaukann. Ég mun greiða atkv. á móti þessum frv., þó óvíst sé, að ég geri grein fyrir því við hverja atkvgr.