26.03.1931
Efri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í C-deild Alþingistíðinda. (1196)
8. mál, vitagjald
Fjmrh. (Einar Árnason):
Viðvíkjandi heim brtt., sem meiri hl. fjhn. flytur, vil ég taka fram, að ég get fallizt á þær. En svo hefir hv. 1. landsk. flutt brtt. á þskj. 238, og um hana skal ég segja það, að í rauninni er ég hv. flm. sammála um efni till. En það er nú svo, að í Nd. eru uppi mjög sterkar raddir um það, að binda svo vitagjaldið, að því megi ekki verja til annars en í þágu siglingaleiðanna kringum landið. Ákvæði frv. þóttu ekki nógu sterk í þá átt, að vitagjaldinu væri aðeins varið í þessu augnamiði. Þess vegna er það, að orðalag frv. er þannig til þess að sameina þessar tvær skoðanir. En ég verð að segja það, að ég er sammála hv. 1. landsk. um það, að í rauninni sé ekki rétt að binda þessar tekjur fyrirfram, svo að löggjafarvaldið hafi ekki fullan umráðarétt yfir þeim. En ég lít svo á, að eftir orðalagi frv. sé þetta í raun og veru ekki bundið, þó að tekið sé fram, að fyrst og fremst eigi að verja því í þessu augnamiði. Ég skal ekki beinlínis leggja á móti brtt., en ég tel, að dálítil hætta sé á því, ef orðalagi frv. verður breytt, að aftur rísi upp deilur í Nd., þegar málið kemur þangað, og er þá vafasamt, hvað ofan á kann að verða. Ég sem sagt læt þessa brtt. hlutlausa. Hefi ég því ekki meira um málið að segja, en vil þakka n. fyrir afgreiðslu frv.