25.03.1931
Efri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í C-deild Alþingistíðinda. (1197)
8. mál, vitagjald
Jón Þorláksson [óyfirl.):
Ég vil geta þess, að það gleður mig stórlega, að hæstv. fjmrh. skuli vera mér sammála, en ég vil bæta því við, að mér finnst afstaða hans slæleg, þar sem hann ætlar að láta till. hlutlausa, af því að aðrar skoðanir, sem hann er ósamþykkur, hafa komið fram í Nd. mér finnst ekki vera hundrað í hættunni, þó þetta frv. þótti fyrir sér að fara á milli deilda, og fyndist mér fara vel á því, að allir hv. þm. í þessari deild syndu hv. Nd., að sú skoðun væri uppi á meðal þeirra, að vilja standa á verði fyrir því, að fjárveitingavaldið heldi rétti sínum til að raða yfir tekjum ríkissjóðs. Það má búast við því eftir reynslunni, að útlendingar komi og gangi eftir því, að þessum ákvæðum verði framfylgt, verði þeim ekki vísað á bug eins og árið 1925 eða ´26.