31.03.1931
Neðri deild: 38. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í C-deild Alþingistíðinda. (1202)

8. mál, vitagjald

Jóhann Jósefsson:

Um þetta frv. er það að segja, að Ed. hefir breytt orðalagi 1. gr. þannig, að gjaldið skuli ekki greitt til „vita, sjómerkja og mælinga á siglingaleiðum“, eins og áður stóð í frv., heldur skuli greitt „vitagjald“ án nánari skilgreiningar. Ég verð að lýsa því yfir fyrir hönd sjútvn., sem hefir athugað þessa breyt., að hún er sömu skoðunar og áður, og þess vegna ber hún fram brtt. á þskj. 313, þess efnis að færa orðalag gr. í sama horf og það var, þegar frv. fór frá þessari hv. d. Vegna þess að tíminn er naumur, vil ég ekki hefja neinar umr. um það, hvað undir þessari breyt. Ed. búi, en vil mælast til, að þessi hv. d. standi við sínar fyrri samþykktir og veiti þessari brtt. stuðning.