28.03.1931
Neðri deild: 36. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 979 í C-deild Alþingistíðinda. (1205)
155. mál, verksmiðja til bræðslu síldar
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Ég veit ekki nema ég þurfi að fara að temja mér að breyta um málróm, þegar ég beini máli mínu til hv. 2. þm. G.-K., fyrst honum þótti ég tala af svo miklum þjósti í ræðu minni í gær. Ég get sagt hv. þm. það, að það var hreinn misskilningur, að ég talaði þá af nokkrum þjósti, en hinsvegar get ég ekki neitað því, að ég var hissa á ræðu hv. 2. þm. G.-K, m. a. vegna þess, að hann er form. í félagi ísl. togaraeigenda og getur því talað af hálfu útgerðarmanna. Þess vegna verður að krefjast þess, þegar hann kemur fram sem slíkur, að hann hafi athugað vel það mál, sem um er að ræða. Þess vegna er það nokkuð einkennilegt, að jafnframt því, sem hann kemur með skýrslu og ákveðnar tölur í slíku máli og fullyrðir, að þær séu réttar, þá kemur fram hjá honum tvennt jafnhliða. Í fyrsta lagi segir hann hvað eftir annað: „Ég býst við, að það sé svona“, og „ég ætla, að þetta muni vera svona,“ og svo í öðru lagi endar hv. ræðumaður á því, sem er alveg rétt, að hann óskar eftir skýrslu og grg. um málið af hendi þess opinbera, sem er auðvitað skyldugt til að láta slíka grg. í té. En hvers vegna þarf hv. þm. að fá þessa skýrslu, ef hann hefir haft allar þessar tölur réttar og á reiðum höndum? Ég er alveg undrandi á þessum mótsetningum í ræðu hv. þm., sem er annars rökvís og skýr maður og er nú, eins og það er kallað, að „filma“ fyrir kosningarnar. Sá partur ræðu hans, sem þessar fljótfærnislegu tölur voru í, svo að ekki sé kveðið fastara að orði, fór vel í munni hans, en þar sem hann kom fram sem form. ísl. botnvörpuskipaeigenda, þá hefði hann átt að láta sér nægja að heimta skýrsluna um rekstur verksmiðjunnar, sem hann áreiðanlega mun fá.
Hv. þm. lagði mér ennfremur þau orð í munn, að ég hafi sagt: „Hvernig á ég að vita um afkomu þessarar verksmiðju?“ Og í því sambandi sagði hann, eins og er alveg rétt, að það mætti ekki eiga sér stað, að atvmrh. fylgdist ekki með rekstri slíks ríkisfyrirtækis. En gallinn á þessu hjá hv. þm. er bara sá, að ég sagði aldrei, að ég vissi ekkert um rekstur verksmiðjunnar. En ég sagði, þegar hv. þm. kom með sundurliðaðar tölur yfir allt, tunnuverð á þessum mánuði og síldarverð á þessum mánuði, og skal játa það nú aftur, að ég er ekki svo vel að mér í þessu efni, að ég hafi á reiðum höndum svar við því, hvort tunnuverðið var 5 aurum meira í júlí eða verð á síld 5 aurum meira í ágúst. (ÓTh: Eiga þessir 5 aurar að gera allan muninn?) Þegar um mörg hundruð þús. kg. er að ræða, þá getur það gert mikinn mun.
Ég skal fúslega játa það, að ég er kunnugri öðrum málum, af þeim, sem undir mitt ráðuneyti heyra. Það vita allir, að ég hefi fyrst og fremst hugsað um landbúnaðinn og framfarir á þeim atvinnuvegi.
Í þessu sambandi vil ég segja það, þó að ég geri ráð fyrir, að það hneyksli suma, að ég álít, að taka megi til athugunar, hvort það sé rétt að hafa aðeins einn ráðh. fyrir atvinnumálin. Þess væri full þörf að hafa tvo ráðh. fyrir atvinnumálin, annan fyrir landbúnaðinn, en hinn fyrir sjávarútveginn. Mér er það ljóst, að á báðum þessum sviðum er svo mikil þörf góðra forgöngumanna, að það er nauðsynlegt, að hvor atvinnuvegurinn fyrir sig hafi sinn ráðh., sem getur þá eingöngu helgað atvinnuveginum starf sitt. Og ég get mjög vel játað það, að í þessu efni hefi ég lagt meiri vinnu í það, sem að landbúnaðinum lýtur heldur en sjávarútveginum; það er á allra vitorði. En það, sem hv. þm. sagði, að það væri vítavert gáleysi, að ég skuli enga hugmynd hafa um rekstur þessa fyrirtækis, þá er það alls ekki rétt, að ég hafi enga hugmynd um það. Ég gat komið því við að koma þangað á þeim tíma, sem verksmiðjan starfaði, og skoðaði hana, eftir því sem ég hafði þol til, en þá var ég nýstaðinn upp úr veikindum og þoldi því ekki vel hið illa loft, sem er í þeim salarkynnum, þegar verksmiðjan starfar, og eftir þeirri reynslu, sem ég hefi fengið af þeim mönnum, sem fyrir verksmiðjunni standa, þá þori ég vel að reiða mig bæði á þá og líka þá, sem verksmiðjuna reistu, og fannst því óþarfi að vera sjálfur með nefið niðri í hverjum dalli og hverri kyrnu, eins og hv. 2. þm. G.-K. vill vera láta.
Ég skal segja hv. þm. það, að eftir nokkra daga kemur formaður stjórnar verksmiðjunnar hingað, og mun hann þá ásamt starfsmanni verksmiðjunnar, sem er hér í bænum nú, ganga frá skýrslu um rekstur verksmiðjunnar, sem sjútvn. mun svo fá í sínar hendur.
Ég hefi nú síðan í gær séð drög til skýrslu um verksmiðjuna, sem ennþá er þó ekki fullgengið frá. Sú skýrsla sýnir og segir, að rekstrarkostnaður verksmiðjunnar nú á fyrsta ári muni vera, sem er ekki heldur neitt undarlegt, nokkru meiri en búast má við, að hann verði síðar. Það er ekkert undarlegt, þó að við verðum á því sviði sem öðrum að greiða kennslugjald. Það verður ekki hjá því komizt, hvort sem um verkun á síld er að ræða eða eitthvað annað.
Rekstrarhalli verksmiðjunnar er eftir þeirri skilgreiningu, sem ég hefi fengið, eitthvað um 65 þús. kr., en ekki svipað því eins mikill og hv. þm. nefndi; hann nefndi 350 þús. kr.
Viðvíkjandi þeim lauslegu tölum, sem hv. þm. nefndi viðvíkjandi stofnkostnaði verksmiðjunnar, þá vil ég segja það, að þær voru vægast sagt villandi, þar sem hann ber saman þá upprunalegu áætlun og þann raunverulega stofnkostnað, án þess að taka tillit til þess, hvenær og hvernig verkið var framkvæmt.
Ég vil segja frá því, hv. sjútvn. til athugunar, að hv. landbn. hefir borizt erindi í þá átt, að tímatakmarkið verði fært til 10. sept. Landbn. hefir tekið þetta erindi til athugunar, en í gær, þegar að því var komið, að n. gengi frá því, þá tók n. eftir því, að þar var farið fram á breyt., sem flutt er í frv.
Það komu fyrir hlutir, sem ómögulegt var að vita fyrir. Eini sinni gerði mikið óveður á Siglufirði og eyðilagðist þá bryggja, sem kostaði 60 þús. kr. (ÓTh: Hún hefir sennilega verið vátryggð). Nei, hún var ekki vátryggð. Og ég býst við, að ekki sé hægt að vátryggja bryggjur á þessum stað. Þar beið verksmiðjan, eins og ég sagði. 60 þús. kr. tjón. Svo voru og liðir, sem fóru fram úr kostnaði, eins og hann var áætlaður í upphafi, t. d. olíugeymirinn. Hann kostaði 70–80 þús. kr.
Sú ásökun þm., að verksmiðjan hefði átt að vera til fyrr, hefir ekki við mikil rök að styðjast. Því var lýst yfir á þinginu 1928, að ekki mætti reisa hana fyrr en stefna hennar um reksturinn væri að fullu mörkuð. Hv. þm. og flokkur hans sá fyrir því, að afgreiðsla málsins fékkst ekki fyrr en í þinglok 1929.
Margt var svo sem hjálpaðist að um að tefja framkvæmdir verksins. T. d. lagðist vetur óvenjusnemma að haustið 1929 á Siglufirði. Sást þar ekki á dökkan díl frá 18. sept. '29 til 3. júní 1930. Urðu vegna þess allar framkvæmdir dýrari og erfiðari. Þess vegna, því miður, þótt verkinu væri flýtt eins og frekast var unnt og töluvert lagt í kostnaðinn, gat verksmiðjan ekki tekið til starfa fyrr en raun varð á. Sennilega hefði tapið orðið enn meira, ef verksmiðjan hefði tekið fyrr til starfa og keypt meira af síld.
Það er mjög ranglátt að álasa stj. verksmiðjunnar, því að ekki gat hún vitað slíkt verðfall fyrirfram. Ég býst við, að ég muni það rétt, að slíkt verðfall á síldarolíu hafi ekki átt sér stað, síðan farið var að starfrækja síldarverksmiðjur á Íslandi.
Þá sagði hv. þm., að aðeins einn maður væri þó góður í stjórn verksmiðjunnar. En það vill nú svo einkennilega til, að það er einmitt sá maðurinn, sem ég valdi. Og ég vil í þessu sambandi skjóta því til hans, hvort hann vilji ekki bera fram frv. þess efnis, að ég velji alla stjórnina. Heldur þessi hv. þm., að áheyrendurnir taki hann alvarlega, þegar hann segir, að ég hafi meiri áhuga fyrir síld en landbúnaði?
Ég hefi nú nefnt aðalniðurstöðurnar og hrakið lið fyrir lið það, sem hv. þm. sagði. Og ég hefi einnig getið þess, að innan fárra daga muni koma skýrsla frá stjórn verksmiðjunnar og mun sú skýrsla að sjálfsögðu verða lögð fyrir sjútvn. En þar á hv. þm. sæti. Og að fengnum öllum upplýsingum um rekstur og stofnun verksmiðjunnar getum við svo fengið gott tækifæri til að deila um þetta atriði.