30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í C-deild Alþingistíðinda. (1211)
155. mál, verksmiðja til bræðslu síldar
Magnús Guðmundsson:
Mér þykir illt, að hæstv. forsrh. skuli ekki vera hér viðstaddur, því að við hann ætlaði ég aðallega að ræða, en ég vænti þess, að einhverjir flokksmanna hans riti það, sem ég segi, svo að honum gefist tækifæri til að sjá, hvað það er og hann geti svarað mér, ef hann vill.
Hæstv. ráðh. lét í ljós undrun sína yfir því, hve miklar umr. hefðu orðið um þetta mál. Fæ ég þó ekki skilið, að það þurfi að vekja undrun hæstv. ráðh., þó að við, sem vorum á móti þeirri aðferð, sem höfð var í þessu máli, viljum benda á það, að spár okkar um þetta fyrirtæki hafa rætzt.
Hæstv. ráðh. sagði, að þess hefði ekki verið krafizt, að verksmiðjan svaraði vöxtum og fyrningarkostnaði fyrsta árið, og svaraði hann þannig óbeinlínis fyrirspurn minni um það, hvort tap verksmiðjunnar hefði ekki verið meira en hann upplýsti. Nú er svo tilskilið í 1. frá 1929, að verksmiðjan borgaði vexti o. fl., og nemur þetta alls 15–20%, og sé tekið tillit til þessa, verða útreikningar hv. 2. þm. G.-K. sízt of háir. En ég vil benda á það, að fram hafa komið kvartanir um það, t. d. búnaðarþingsins, að mjölið frá þessari verksmiðju sé vont. Ég hefi líka heyrt, að lýsið væri svo gallað, að ekki hefði verið hægt að selja það við því venjulega verði, sem nú er á lýsi, og er það þó ekki hátt. Þetta hvorttveggja bendir til þess, að vélarnar í verksmiðjunni séu eitthvað gallaðar, eða þá að ekki sé réttilega með þær farið, og svo illt sem hið síðara er, er þó hið fyrra sýnu verra.
Ég gleymdi að taka það fram viðvíkjandi þeim gjöldum, sem verksmiðjunni ber að inna af höndum, að ég fæ ekki séð, að stj. geti fellt niður þær greiðslur, sem lögskipaðar eru, á yfirstandandi ári, nema hún fái til þess heimild frá þinginu. Kemur þá auðvitað á ríkið að standa undir þessum greiðslum, og þegar tekið er tillit til þess, að verksmiðjan skilar 65 þús. kr. tekjuhalla, séest, að hún er þegar ekki orðin svo lítill ómagi á landinu. Er því miður hægt að gera ráð fyrir því, að þetta geti komið fyrir aftur, og er því hörmulegra til þess að vita, þar sem verksmiðjan borgaði minna fyrir hvert mál síldar en aðrar verksmiðjur. Mig undrar það því ekki, þó að hæstv. forsrh. viðurkenni það nú, að hér sé um meira áhættufyrirtæki að ræða en hann vildi láta í veðri vaka 1929.
Hæstv. ráðh. hélt því og fram, að verksmiðjan hefði verið byggð til þess að hjálpa atvinnuvegunum. Fæ ég ekki séð, hvaða hjálp hefir orðið að henni fyrir atvinnuvegina, því að þeir, sem voru svo óheppnir að selja verksmiðjunni síld, fengu enn minna fyrir síldina en aðrar verksmiðjur greiddu, þrátt fyrir það, þó að ríkið hafi beðið mikinn halla þar að auki. Annars var það eftirtektarvert í ræðu hæstv. forsrh., er hann sagði, að tapið á verksmiðjunni hefði orðið ennþá meira, ef hún hefði byrjað fyrr en hún gerði. Verða ekki af því dregnar neinar glæsilegar ályktanir um framtíð þessa fyrirtækis, svo að auðsýnt er, að bezt hefði verið fyrir alla aðilja, að verksmiðjan hefði ekki tekið til starfa í sumar, enda skildist mér svo af ræðu hæstv. forsrh., að hann væri ekki eins fastur á réttmæti ríkisrekstrar nú og hann var 1928 og 1929.