25.03.1931
Neðri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1036 í C-deild Alþingistíðinda. (1240)

173. mál, Útvegsbanki Íslands h/f

Flm. (Jón Ólafsson):

Ég þarf ekki mörgu að svara. Ég hélt, að ég hefði hagað svo orðum mínum í fyrri ræði minni, að ég hefði ekki gefið ástæðu til að fara inn á forsögu málsins, enda er engu máli betur borgið fyrir það, þótt farið sé að vekja upp gamlar væringar í sambandi við það. Nú þýðir ekki að vera að tala um, hvað hefði átt að gera fyrir nokkrum árum, heldur hvað gera skuli til að tryggja hag bankans í framtíðinni.

Hv. l. þm. Skagf. taldi, að ríkisábyrgð á sparisjóðsfé Útvegsbankans mundi leiða til þess, að menn tæmdu sparisjóði sína, nema ríkisábyrgð væri tekin á þeim líka. Ég man, að þessu var einnig spáð, er ríkisábyrgð var tekin á innstæðufé í Landsbankanum, en ekki hefir þó borið hið minnsta á þessu. Sparisjóðirnir eru venjulega á takmörkuðu svæði, þar sem hver þekkir annan, og stjórnir sparisjóðanna eru því valdar svo, að fé geti verið öruggt í vörzlum þeirra. Að vísu má benda á sparisjóðina í Árnessýslu sem undantekningar. En hrakfarir þeirra byggðust á því, að þeir tóku upp einskonar samkeppni við bankaútibúið, og auk þess var þá ríkjandi meiri bjartsýni í fjármálum en fyrr eða síðar á landi hér.

Þá er annað atriði, sem mig furðar á, að hv. 1. þm. Skagf. skuli hafa flaskað á. Hann ber saman skuld Íslandsbanka í fyrra og Útvegsbankans nú við Landsbankann og kemst að þeirri niðurstöðu, að skuldin hafi aukizt um helming. En svo stendur á, að Landsbankinn hefir jafnan keypt af hinum bankanum fiskvíxla, þ. e. a. s. veitt bráðabirgðalán út á fisk. unz fiskurinn er seldur. Í fyrra var allur þessi fiskur kominn í peninga á þeim tíma, er reikningur Íslandsbanka var saminn, en í vetur var fiskurinn ekki kominn í peninga um áramót og sumt af honum ekki ennþá. Það munu flestir játa, að árin 1928 og 1929 séu ekki sambærileg við síðari hluta síðasta árs, þegar um fisksölu er að ræða. Í þessu liggur mismunurinn á skuldarupphæðinni nú og í fyrra, og veit ég, að hv. 1. þm. Skagf. mun fallast á röksemdir mínar í þessu efni, er hann hefir heyrt þær.