25.03.1931
Neðri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í C-deild Alþingistíðinda. (1256)
173. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Magnús Guðmundsson:
Hv. þm. V.-Húnv. sagði, að ég kærði mig ekki, þótt sparisjóðir úti um land misstu fé sitt, ef það rynni til Útvegsbankans. En þetta sagði ég ekki, heldur það, að ef þetta kæmi fyrir og það ætlaði að lama sparisjóðina, þá yrði einnig að hlaupa undir bagga með þeim. Undir slíkum kringumstæðum sé ég ekki, að sé nema um tvær leiðir að ræða; önnur er sú, að ríkið gangi í ábyrgð fyrir sparisjóðina líka, en hin er sú, að afnema alla ríkisábyrgð fyrir lánsstofnanir. Sú tíð getur komið, að við hv. þm. V.-Húnv. stöndum hér frammi fyrir slíku vandamáli. Það er ekki nema eitt ár síðan deilt var um ábyrgð handa Íslandsbanka, og ég vil vona, að það verði meira en eitt ár þangað til það sama kemur fyrir að því er kemur til sparisjóðanna.
Hæstv. forsrh. sagði í ræðu sinni áðan, að búið væri að afskrifa af eignum bankans um 10 millj. kr. á síðastl. ári. Það er gott að fá þessar upplýsingar frá hæstv. forsrh., sem hefir verið æðsti maður bankans í 4 ár og í fyrra kom því til leiðar, að ríkið lagði fram 4½ millj. kr. til bankans. Það lítur út fyrir, að það fari að verða óhætt að hætta að deila um það, hjá hverjum sé mest sökin á skuldum bankans.