21.02.1931
Neðri deild: 6. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í C-deild Alþingistíðinda. (1279)

1. mál, fjárlög 1932

Héðinn Valdimarsson:

Þegar ég talaði þessi fáu orð aðan, stóð ég í þeirri trú, að þá væri enn útvarpað. En nú sé ég, að þeir menn, sem voru úti á götu að hlusta, eru farnir. Og þó að hv. 1. þm. Reykv. væri að tala, fannst mér það ekki næg ástæða til þess að þeir hyrfu allir.

Mér er spurn: Hver ræður því, hverju er útvarpað? Hugsum okkur, ef einhver Jónas Þórbergsson væri yfir Alþt. og réði, hvað væri prentað. Hvaða fréttir myndi þjóðin fá af þessu þingi? — Ég vil taka undir með hv. 1. þm. Reykv., að þessu verður að kippa í lag. Ef útvarpa á úr þinginu, verður þingið sjálft að ráða því, hvenær útvarpað er. Og það á að ganga jafnt yfir flokkana, svo að þeir hafi allir jafnt tækifæri til að láta útvarpsnotendur til sín heyra.