14.03.1931
Neðri deild: 24. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í B-deild Alþingistíðinda. (128)

77. mál, fiskimat

Ólafur Thors:

Það er rétt hjá hv. frsm., að það er ekki mikilsvert atriði, hvor leiðin er farin. Ég kann því þó verr, að ekki séu föst l., sem ákveða um þetta, nema þá á alveg sérstakar ástæður séu fyrir hendi. Það er misskilningur, að það skipti engu máli, hvort lagafyrirmæli eru um það, hvort fiskurinn skuli vera pakkaður, eða ekki. Ástæðan til þess, að ósk um að fiskurinn skyldi vera pakkaður kom fram, var sú, að fiskkaupmenn á Spáni vildu fyrirbyggja það, að smásalarnir gætu valið úr fiskinum, en það gátu þeir gert, ef hann var í stafla, ópakkaður. Þeir taka kannske 50, 100 eða 200 kg. í einu. Ef fiskurinn er pakkaður, verða þeir að taka 1, 2 til 4 pakka, eins og þeir koma frá ísl. matsmönnum, en geta ekki valið úr. Það er vitanlega enginn hagur að því, að smásalarnir geti þannig gengið á rétt heildsalanna; þeim mun kröfuharðari verða þeir. En við viljum vitanlega halda fast við ísl. matið, bæði til heildsalanna og smásalanna, og það næst með því að pakka fiskinn.

Mér virðist nú við athugun l. frá 1922 og till. auðvelt að koma þessu fyrir á heppilegan hátt. Ég vildi því mælast til þess, að málið verði tekið af dagskrá að sinni og að mér verði gefinn kostur á að ræða þetta mál við hv. sjútvn. Ég held, að vandalítið sé að koma þessu svo fyrir, að báðir geti orðið ánægðir.