25.03.1931
Neðri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í C-deild Alþingistíðinda. (1284)
173. mál, Útvegsbanki Íslands h/f
Ásgeir Ásgeirsson:
Það er vegna ummæla hv. þm. Ísaf., sem ég finn mig knúðan til þess að segja nokkur orð. Hann felldi þunga dóma um afgreiðslu þessa máls á síðasta þingi. Mér kom þetta mjög á óvart, því að undirtektirnar undir lokatillögur þess máls voru svo góðar, að þingheimur mátti heita sammála. Formaður flokks þessa hv. þm. lét það í ljós, að þessi væri næstbezta lausnin á málinu, og síðar hefir sá hinn sami flokksforingi innsiglað þessi ummæli sín með því að taka að sér bankastjórastöðu við Útvegsbankann. Hv. þm. Ísaf. hefir fetað dyggilega í fótspor foringja síns og er nú orðinn starfsmaður við þann banka, sem hann nú taldi glapræði að hefir verið settur á stofn. Ef afgreiðsla þingsins er glapræði, þá skil ég ekki, hvernig þessir hv. þm. hafa getað fengið af sér að takast á hendur þennan starfa. Að vísu hefir verið bent á, að ástand bankans er verra en við var búizt, en þó er bersýnilegt, að hlutafé bankans mun nú að frádregnum afskriftum vera upp undir 3 millj. auk 4½ millj. kr. í áhættufé, sem tapast á undan öðrum skuldbindingum bankans, ef til kemur.
Banki, sem svo stendur, á kröfu til þess, að ekki sé vakin til hans tortryggni, og býst ég ekki við, að hv. þm. Ísaf. vilji vera í hópi þeirra manna, sem vekja óþarfan ótta um Útvegsbankann.
Það frv., sem hér um ræðir, er ekki komið fram vegna þess, að óforsvaranlega hafi verið gengið frá þessu máli á seinasta þingi. Ég finn ekkert það í þessu frv., sem sýni, að viðskilnaðurinn á síðasta þingi hafi verið slæmur. Frv. mun fram komið til þess að draga saman í einn bálk öll þau ákvæði, sem um bankann gilda. Í lögum um Íslandsbanka er meginið af gildandi ákvæðum um Útvegsbankann, og er það nú orðin allmikil flækja. Þegar sýna þarf erlendum fjármálamönnum þær reglur, sem bankinn starfar eftir, þarf að tína þetta saman úr öllum áttum. Af þessum ástæðum einum saman er það nauðsynlegt að bera fram bálk um Útvegsbankann.
Hitt, sem er annað aðalatriðið í þessu máli, seðlainndráttur bankans, býst ég ekki við, að neinn hafi gert ráð fyrir, að ekki þyrfti að gera um aðrar reglur en hingað til hafa gilt. Hygg ég, að enginn vilji ganga svo hart að stofnuninni um seðlainndráttinn, að henni verði af því stór bagi.
Ákvæðið um ábyrgð á innlánsfé sýnir ekki, að afgreiðslu málsins hafi verðið ábótavant á seinasta þingi. Hér er aðeins borin fram lík tillaga og felld var á seinasta þingi, þótt hún sé nú flutt af öðrum mönnum en þá. Um það atriði er mín afstaða að öllu óbreytt. Afskipti ríkissjóðs af þessum banka eiga að vera með þeim hætti, að áhætta ríkisins takmarkist við ákveðin framlög eða tilteknar ábyrgðir.
Á seinasta þingi var bankinn leystur úr ýmsum höndum við ríkið, svo sem það, að forsrh. skyldi eiga sæti í bankaráðinu. Hafði það valdið misskilningi meðal ýmissa erlendra viðskiptamanna. Þegar nú skýrt er orðið, að ríkið er eingöngu hluthafi í þessari stofnun með ábyrgð takmarkaðri við framlagt hlutafé, þá væri miður farið, ef þessu yrði breytt þannig, að afstaða ríkisins til bankans yrði ógleggri og ábyrgð ótakmörkuð. Það verður ekki fullyrt, að ábyrgð ríkissjóðs á Landsbankanum hafi dregið fé út úr Útvegsbankanum. Til þess lágu aðrar orsakir. Það var fjárþörf eigenda og tortryggni til Íslandsbanka, sem olli úttektinni. Frá því að landsbankalögin voru sett og allt til þessa tíma hafa orðið litlar breytingar á innstæðufé Íslandsbanka.
Það er ekki þessi ábyrgð, sem valdið hefir hruni bankans, því að almenningur mun alltaf hafa litið svo á, að ríkið bæri ábyrgð á Landsbankanum. Það var aðeins deilt um það, hvort orða skyldi þetta bert, en um hitt hygg ég varla, að deilt hafi verið, að ríkið bar í rauninni ábyrgð á Landsbankanum frá stofnun hans 1886.
Til þess að Útvegsbankanum geti vaxið fiskur um hrygg, verður að efla traust á honum, svo sem hann á skilið, og væri því æskilegt, að ekki yrði mikið um deilur um bankann, því að það gæti vakið ástæðulaust vantraust.
Það er mjög óheppileg braut að færa ábyrgðina á öllum atvinnuvegum í landinu yfir á ríkissjóð. Hygg ég að fulllangt sé komið í því efni.