16.03.1931
Neðri deild: 25. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (131)
77. mál, fiskimat
Sveinn Ólafsson:
Mál þetta var tekið út af dagskrá í fyrradag vegna ágreinings, er varð milli okkar hv. 2. þm. G.- K. út af brtt. sjtitvn. við frv., á þskj. 143.
Nú hefir n. athugað þetta mál af nýju og orðið með samráði við hv. 2. þm. G.-K. ásatt um að láta brtt. n. standa óbreytta og koma þannig undir atkv.
Ég sé ekki ástæðu til að gera frekari grein fyrir þessari ákvörðun, en ef hv. 2. þm. G.-K. vill eitthvað um það segja, þá gerir hann það. Ég get aðeins tekið það fram, að þessi ráðstöfun er gerð til bráðabirgða, þar sem nú starfar nefnd utan þings að undirbúningi lagafrv. um fiskimat, sem væntanlega kemur fyrir þetta þing eða næsta þing. Þessa bráðabirgðaráðstöfun hefir hv. 2. þm. G.-K. fallizt á, ef ég hefi skilið hann rétt. Vænti ég svo, að hv. þd. samþ. frv. ásamt brtt. á þskj. 143.