11.04.1931
Neðri deild: 44. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í C-deild Alþingistíðinda. (1347)
35. mál, lendingarbætur á Eyrarbakka
Magnús Torfason:
Margt hefir verið sagt síðan ég stóð upp síðast, en ekki af eins mikilli þekkingu og vera þyrfti.
Það hefir verið sagt, að sandurinn bærist austur með landinu, og væri það ytri legan, sem mundi fyllast fyrst og á undan eystri legunni. En það er einmitt eystri legan, sem er nú óðum að fyllast, og færist sandurinn svo vestur eftir. Ber að vísu ekki mikið á honum, en höfnin grynnkar þó smátt og smátt. Hlýtur þessi misskilningur að stafa af ókunnugleika manna á staðháttum þar eystra.
Þá hefir og verið talað um hinn gífurlega kostnað, sem leiða mundi af því að sprengja nokkrar nibbur og sker í innsiglingunni. Ég get um það vísað til ummæla formanns nokkurs á Eyrarbakka, sem jafnan hefir dvalið þar og stundað þaðan sjósóknir, og hefir því verið nærri daglega þar á höfninni. Hann lítur svo á, að ekki sé vist, að sprengingar þær muni verða dýrari heldur en á Stokkseyri. Þessar sprengingar taka mjög langan tíma. Á Stokkseyri var t. d. unnið að þeim í 10 ár. Kom stundum fyrir, að ekki var hægt að vinna að þeim nema örfáa daga á sumri, svo sem eðlilegt er.
Það hefir verið spurt um það, hve stór skip kæmust nú inn á Eyrarbakkahöfn. Í fyrra lá þar 150 smál. skip. Munu stærri skip ekki komast inn. Má ef til vill bjargast við það fyrst um sinn, en þess ber þó að gæta, að farmgjöld eru miklu dýrari með smærri skipum heldur en með þeim stærri.
Það hefir verið talað um ábyrgð á þessu verki. Ég held, að áhættan sé ekki mikil. Slíkur garður hefir staðið í 5 ár í Þorlákshöfn, og hafði ekkert brotnað úr honum þegar ég vissi siðast. Reynslan kennir mönnum líka að vanda sig betur.
Þetta fyrirhugaða verk hefir verið borið saman við brimbrjótinn í Bolungavík. Þar gegnir öðru máli. Það var ekki hafrótið sjálft, sem eyðilagði brimbrjótinn, heldur grjótburðurinn. Svo er það ekki á Eyrarbakka. Garði þar stafar engin hætta af grjótburði.
Það hefir verið drepið á, að sækja mætti um fé þetta í fjárlögum, og er það vitanlega rétt. En ég sé ekki, að samþ. þessara laga með öllum þeim varnöglum, sem þar eru taldir, geri neitt til, og því engin hætta á ferðum, að samþ. frv. eins og það liggur fyrir. En samþ. laga um þetta efni hefir það gildi að mynda löglega framkvæmdanefnd, til þess að annast verkið. Á Skálum á Langanesi vantaði einmitt slíka nefnd, enda engin lög um, hvernig fara ætti að, ef kostnaðaráætlun verksins færi fram yfir þá upphæð, sem veitt var. Hv. frsm. meiri hl. lagði sérstaklega áherzlu á þessa vantandi ábyrgð um, að hve miklu gagni þetta mannvirki komi, en sú ástæða lýtur þá að því, að samþ. aldrei lögin, því að ég býst ekki við að hægt sé að toga frekari ábyrgð út úr vitamálastjóra, eða mönnum hans, en fengin er.
Annars er mér nær að halda, að ef ég hefði getað talað við hv. sjútvn., þá hefði orðið meiri von um framgang þessa máls en nú virðist. Verður því, úr því sem komið er, að skeika að sköpuðu, hvernig um það fer.
Hv. 1. þm. Rang. (EJ) var að setja horn í þetta mál og kom mér það að sönnu ekki alveg á óvart. Mér, sem gömlum Rangæingi, er kunnugt um, að Árnesingar og Rangæingar hafa aldrei komið sér saman, þegar um verzlunarmál beggja sýslnanna hefir verið að ræða. Hinsvegar hélt ég nú samt, að hv. þm. mundi ekki taka máli þessu með ónotum. Ég hefi alltaf stutt málstað Rangæinga, bæði á þessu þingi og jafnan áður, og með tilliti til þess finnst mér hv. 1. þm. Rang. hefði getað látið undir höfuð leggjast að vega gegn þessu máli.