11.04.1931
Neðri deild: 44. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í C-deild Alþingistíðinda. (1350)
35. mál, lendingarbætur á Eyrarbakka
Einar Jónsson:
Ég get ekki sagt, að ég hafi orðið fyrir beinum árásum frá hv. 2. þm. Árn., en ekki var hljóðið létt í honum, svo að eitthvað hafa þau snortið hann ónotalega þessi fáu orð, sem ég mælti áður.
Hinsvegar býst ég ekki við, að það snerti mig svo mjög, þó að klettarnir fyrir vestan éti gat á brimbrjótinn í Bolungavik, eins og hv. 2. frsm. Árn. komst að orði, en ríkissjóður hefir ekki farið varhluta af því að bæta þessi margumtöluðu göt, sem árlega hafa dottið á þetta merkilega mannvirki Bolvíkinga. Að ég minntist á brimbrjótinn, kom til af því, að ég bjóst við að eins gæti farið á Eyrarbakka, að hinn fyrirhugaði garður stæði ekki af sér stórsjóa þá, sem berast að landi þar frá opnu úthafinu.
Þá var þessi sami hv. þm. að upplýsa um, að Rangæingar og Árnesingar kæmu sér aldrei saman í verzlunarmálum og virðist mér ærið torskilið, hvers vegna hann fer að benda á verzlunarmál í sambandi við málið, sem hér liggur fyrir. Að grafa upp sandeyrar úr skipalegunni við Eyrarbakka og hlaða garða henni til varnar hélt ég að væri fremur samgöngumál þeirra Eyrbekkinga, og Árnesinga þá um leið, heldur en verzlunarmál sýslnanna austur þar. En hann um það.
Þá verð ég að bæta því við, að mér þykir talsvert undarlegt, og ekki sízt af honum, að fara að gera hér að umtalsefni ósamkomulag milli þessara sýslna; því að ef svo er, að þessir aðiljar, Árnesingar og Rangæingar, hafi ekki getað komið sér saman um sín sameiginlegu hagsmunamál, þá virðist liggja næst að halda, að þessi hv. þm. eigi einhverja sök á því. Hann hefir, eins og kunnugt er, verið embættismaður í báðum sýslunum og farið með umboð beggja þeirra á Alþingi, þó að það væri nú raunar skamma stund, sem Rangárvallasýsla nyti þingmannshæfileika hans.
Þá virtist þessi sami hv. þm. vera drjúgum upp með sér yfir afskiptum sínum af málum Rangárvallasýslu og var að hrósa sér fyrir, hve vel hann hefði stutt Rangæinga í öllum málum sýslunnar hér á þingi. En mér datt helzt í hug, er ég heyrði þetta hrós hans um sjálfan sig: „fyrst Rangæingar hrósa mér ekki, verð ég að gera það sjálfur“, enda er skemmst á að minnast, að einmitt þessi hv. þm., sem bæði hefir verið sýslumaður og þingmaður Rangæinga, hefir reynzt Rangæingum sá Þrándur í Götu hér á Alþingi, að trauðla gleymist í bráð. T. d. get ég nefnt það, að á þinginu 1929 fékk hann því framgengt, að Arnessýslu var gefin eftir allmyndarleg fúlga af viðhaldskostnaði Flóavegarins. Við þm. Rang. veittum honum drjúgan stuðning í því máli, eins og líka sjálfsagt var. En þann stuðning launaði þessi hv. þm. á þá lund, að greiða atkv. á móti því, að Rangárvallasýsla fengi samskonar eftirgjöf, sem þó var af flestum álitið jafn réttlátt og um Árnessýslu. Á þann hátt tókst honum í það sinn að hafa af Rangárvallasýslu nokkur þúsund krónur. Verður því ekki annað sagt, en að umhyggja þessa hv. þm. fyrir velferð Rangárvallasýslu sé nokkuð takmörkuð á stundum. Sama má og segja um hvikulleik hans í járnbrautarmálinu.
Ég sný ekki aftur með það, sem ég hefi áður sagt um eyrina eða sandburðinn frá Ölfusá. Eyrin er ekki hættulegust fyrir höfnina við Eyrarbakka. Þessvegna vildi ég óska, Bakkans vegna, að sandeyrin yrði samföst alla leið út í brimgarð og innskerjaboðar hyrfu þar með úr sögunni, því að þá yrði samhliða komin hentugri lending þar en verið hefir um skeið. Eins og er, verður fyrst að laga skerjagarðinn og tryggja það, að hann verði bátum og stórskipum fær sem oftast.