11.04.1931
Neðri deild: 44. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 697 í C-deild Alþingistíðinda. (1410)
40. mál, hafnargerð á Sauðárkróki
Benedikt Sveinsson [óyfirl.]:
Ég vil stuttlega gera grein fyrir afstöðu minni til þessa frv.
Það er að vísu rétt, að ég ritaði undir nál. ásamt tveim öðrum nm. og myndaði því með þeim nokkurskonar meiri hl. innan n. En ég skrifaði þó undir með fyrirvara og ég tók það fram í n., og það vissu meðundirritaðir vel, að ég var þeim ekki sammála nema að mjög litlu leyti. — Þeir vissu, að ég var ekki samþ. frv. með þeim breyt., sem þeir lögðu til að á því væru gerðar. Og þeir vissu, að ég var heldur ekki samþ. frv. óbreyttu. Ég legg ekki svo mjög mikla áherzlu á það, eftir hvaða hlutföllum hafnargerðir eru styrktar af ríkinu. Aðeins tel ég, að á því þurfi að vera samræmi. En ég tel alveg þýðingarlaust að vera að samþykkja hin og þessi hafnarlög, þar sem ekki er sjáanlegt, að hægt sé að koma þeim í framkvæmd á næstu eða nálægum árum vegna fjárskorts. Það var nýlega sagt í blaði hv. flm. frv., að ekkert fé yrði til á næstu árum og að þau framkvæmdamál, sem þingið afgreiddi, yrðu eingöngu pappírslög. Ég get því ekki, af þeim ástæðum, verið með hafnargerð á Sauðárkróki eða Dalvík. Svo mikið tillit ætla ég að taka til flokksblaðs hv. flm. þessa frv. Það er heldur ekki hægt að segja, að engin höfn sé í Skagafirði. Það er einmitt dágóð höfn á Sauðárkróki. Að vísu er hún ekki svo traust og góð sem bezt verður á kosið. En góðar hafnir eru ekki í mjög mikilli fjarlægð, svo sem á Siglufirði, Akureyri og víðar. Enda er þessi höfn notuð mest um hásumarið. — Ég verð að segja, að nokkru öðru og ólíku máli þó sé að gegna um Akranes. Sá staður er mjög í uppgangi og þörfin mikil fyrir höfn allan ársins hring, til afgreiðslu og verndunar fiskiflotanum. Enda þótt æskilegt væri, að hinir staðirnir fengju betri höfn, þá liggur þeim þó ekki nærri eins mikið á og Akranesi. Ég er því ósammála hv. frsm. um það, að mest þörfin fyrir höfn sé á Sauðárkróki.
Með þessu, sem ég hefi sagt, er þó ekki þekkst við sjálfa hugmyndina, en ég álít, að hvað verði að bíða síns tíma, en mest beri að meta þá staði, þar sem þörfin er brýnust.
Eins og ég gat um áður, þá þýddi fyrirvari minn það, að ég væri á móti frv. breyttu og óbreyttu. (MG: Fyrirvarinn þýðir þá það, að hv. þm. vill drepa frv.). Já, fyrirvarinn þýðir eiginlega það, að ég vil fella frv., og eins hið næsta hér á eftir á dagskránni (hafnargerð á Dalvík).