13.04.1931
Neðri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1098 í C-deild Alþingistíðinda. (1451)
194. mál, þingmannakosning í Reykjavík
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það er að vísu ekki stórmál í sjálfu sér, hvort bæta skuli einum þm. við Rvík eða ekki, og það er ekki um það atriði sérstaklega, sem ég ætla að tala hér, heldur er það af þeirri ástæðu, að mér þykir réttara, áður en frv. þetta fer út úr þessari hv. deild, að láta koma skýrt fram í umr., hvað hér sé raunverulega um að ræða.
Upprunalega var frv. flutt til þess að fá það fram, að þm. væru kosnir í betra samræmi við höfðatölu kjósenda. En svo var hætt við að bera frv. fram á þeim grundvelli. Jafnaðarmenn og Sjálfstæðismenn hér í þessari hv. d. greiddu allir atkv. með því, að þm. í Rvík skyldu vera 5. Það var gert til að taka burt einn aðalásteytingarsteininn, sem yrði milli jafnaðarmanna og sjálfstæðismanna við væntanlegar kosningar, því ef ekki ætti að kjósa nema 4 menn, þá væri vafasamt, hvernig færi, en þegar kjósa á 5, þá er talið líklegt að annar flokkurinn fái 3, en hinn 2. Þetta er gert til þess að fá samkomulag milli þessara flokka, svo að þeir geti unnið sameiginlega að því stóra máli, sem þeir hafa orðið sammála um, en það er að koma fram stórfelldum allsherjar breyt. á kjördæmaskipuninni í landinu.
Til þessa hafa og þessir 2 flokkar orðið sammála um ákveðnar breyt. á stjórnarskrárfrv. því, sem lagt hefir verið fyrir þingið. Er borin fram af formönnum beggja þessara flokka brtt., er gengur í þá átt, að heimilt sé að hafa hlutfallskosningar í stað kjördæmakosninganna, sem nú er. Þetta er gert til þess, að ekki þurfi stjskrbreyt. á ný til þess að framkvæma það, sem þessir flokkar hafa orðið sammála um. Hygg ég, að samningar milli þessara flokka standi svo, að kjördæmin eigi að vera 5–6 og hlutfallskosningar í þeim öllum.
Það er m. ö. o. verið að taka pólitíska valdið af héruðunum úti um land og færa það í hendur Rvík sérstaklega, án þess ég vilji nú rökstyðja þau ummæli svo ítarlega sem auðvelt er.
Þetta vildi ég láta koma skýrt fram.
Ekki mun takast að leyna því, að um þetta er að ræða, og verður þá við kosningarnar í vor kosið um það, hvort leggja eigi niður hin fornu kjördæmi, t. d. Skagafjörð, Rangárvallasýslu, V.-Húnavatnssýslu o. s. frv. Þetta hafa flokkarnir ákveðið. Þetta vildi ég láta koma skýrt fram áður en málið fer út úr þessari hv. deild. Geng ég ekki að því gruflandi, hvað hér er um að ræða, og mun því hiklaust greiða atkv. móti þessu frv.