28.02.1931
Neðri deild: 12. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í C-deild Alþingistíðinda. (1484)
54. mál, ábúðarlög
Einar Jónsson:
Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því, að hér er á ferðinni endurvakningur frá fyrri þingum, sem ég þó tel, að sé ekki til nokkurra bóta. Ég er í landbn. á þessu þingi sem að undanförnu, og til þeirrar n. er einkum safnað endurvakningum frá fyrri þing um, sem sumir hverjir eiga lítinn rétt á sér. Ég skil ekkert í því, hvað sumir hv. þm. eru áfjáðir í að breyta og bylta ný orðnum lögum og eyða með því tíma þingsins í óþarft og endurtekið þóf frá ári til árs. Nú er hitt og annað af slíkum málum á dagskrá dag eftir dag. Má gera ráð fyrir því, að það tefji svo fyrir þinginu, að það verði að standa minnst 100 daga eða lengur í þetta sinn sem oftar. Eitt af því, sem líka tefur fyrir, er frv. þetta, sem nú er á dagskrá. Í því eru ýms ákvæði, sem ég held, að enginn bóndi vilji ganga að óbreyttum og ótilneyddur. Ég hefði því helzt kosið, að málið væri nú þegar sett á hilluna, svo það yrði hvorki n. eða þingi til tafar. Ég skal þó eigi með öllu leggjast á móti því, að frv. verði vísað til n., en óska eindregið, að því verði ekki vísað til landbn. Til þeirrar nefndar er rótað flókn um frv.-bunka, í svo stórum stíl, að við bændur, sem þar eigum sæti, kvíðum önnum og afgr.
Ég get sparað mér lengri ræðu, þar sem gegn þessu máli hafa verið færð svo gild rök á fyrri þingum, að óþarft er við að bæta. En svo margir agnúar eru á þessu frv., að helzt vildi ég, að það væri drepið tafarlaust, ef ekki tekst að fá gagngerðar breytingar án mikilla erfiðleika. Ég mun eigi brjóta þingsköpin með því að fara út í einstök atriði frv. við þessa umr. málsins, en gera frekari athuganir, ef mér sýnist síðar. Sem sagt, geymi mér frekari aths. til síðari umr., og lýk ég því máli mínu að sinni.