28.02.1931
Neðri deild: 12. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 742 í C-deild Alþingistíðinda. (1492)
54. mál, ábúðarlög
Magnús Jónsson:
Ég ætla ekki að fara að bera sprek á þær glæður, sem hér hafa lýst okkur um stund. Aðeins vildi ég drepa lítillega á tvö atriði í sambandi við þetta frv. Annað þessara atriða er form legs eðlis og snertir flutning frv.
Frv. er samið af mþn. í landbúnaðarmálum og er fyrst flutt hér á þinginu af henni. Var ekkert undarlegt við það, þar sem stj. mun þá ekki hafa haft tök á að leggja hönd á frv. Síðan hefir frv. verið borið fram þing eftir þing af þm., en ekki af stj. Þar sem frv. er allmikill laga bálkur og hefir víðtækar verkanir, er ekkert vit í að samþykkja það, fyrr en stj. hefir vandlega undirbúið það sjálf og þannig tekið ábyrgð á því. Að stj. skuli skirrast við að bera frv. fram þing eftir þing, getur ekki af öðru stafað en að hún telur það varhugavert, og ætti þetta að hvetja menn til að gæta hinnar mestu varúðar gagnvart málinu.
Hitt atriðið, sem ég ætla að minnast á, er efnislegt. Aðaltilgangur og aðalstefna mþn. er augljós. En hún er sú, að koma sem flestum jörðum úr leiguábúð í sjálfsábúð. Ég hygg, að því verði ekki á móti mælt, að þetta sé heppileg stefna. Hv. flm. hefir sýnt hér fram á það, að þær jarðir eru betur setnar, er ábúendur eiga sjálfir, heldur en leigujarðir. Þessi til gangur frv. er lofsverður. En þær aðferðir, sem nefndin hefir valið, eru mjög var hugaverðar og leiða til alls annars en ætlazt var til.
Að þessu marki má vinna með tvennu móti. Það má laða leiguliða til þess að kaupa jarðir, með því að greiða fyrir þeim t. d. með aðgengilegum láns kjörum.
En líka má ná þessu marki með því að þröngva svo kosti jarðeigenda, að þeir neyðist til að selja jarðirnar. Að þessari stefnu hafa hv. nm. hallazt. Þetta finnst mér nú hálfgerður „bolsevismus“ (hv. þm. verða að fyrirgefa, þótt orðið sé ljótt). Ef hv. nm. álíta, að þetta sé gert í þágu alþjóðar, þá hlýtur það að vera stefna þeirra að gera mönnum sem erfiðast að halda eignum sínum. Ég verð að álíta, að hér sé gengið of nærri eignar réttinum.
Þetta er sá meginstraumur, sem gengur gegnum frv. En ég vil benda hv. d. á það, að annar straumur gengur gegnum frv. þetta, þvert á móti hinum. því að jafnframt því, að þröngvað er kosti jarðeigenda, er leiguliðum gerð leiguábúðin sem þægilegust, og því beinlínis unnið á móti því, að þeir kæri sig um að kaupa.
Þetta er aðalgalli frv. Ef nefndin hefði verið sjálfri sér samkvæm, þá átti hún að gera báða óánægða, þannig að jarðeig endur vildu selja jarðirnar og leiguliðar kaupa þær.
Ef frv. yrði að lögum, þá myndu jarðirnar hrynja í verði. Sérhver vara, sem líkt væri farið með, að framboð ykist og eftirspurn minnkaði, myndi lækka í verði. (EJ: Þær myndu leggjast í eyði). Nei, þær myndu aðeins lækka í verði — komast að lokum svo lágt niður, að menn vildu kaupa þær.
Kannske það sé ekkert við því að segja, þótt jarðirnar falli í verði? Það hefir e. t. v. vakað fyrir n. Ég skal nú ekki fjölyrða um það, en í fljótu bragði virðist mér það vera allhart, ef jarðirnar eiga að falla í verði, samhliða því, að fasteignamatið hækkar og þar af leiðandi skattar af þeim. Veðhæfi jarðanna myndi og minnka stórum við það.
Ég býst varla við, að n. hafi ætlazt til þessa. En ég tek hér til máls vegna þess, að mér finnst, að hér sé á ferðum mál, er gæti haft mjög varhugaverðar afleiðingar. Ég viðurkenni hinn lofsverða tilgang frv., en mér finnst, að n. hafi algerlega mistekizt hvað aðferðir snertir.
Ég mun ekki hafa á móti því, að frv. fari til 2. umr. og nefndar.