28.02.1931
Neðri deild: 12. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í C-deild Alþingistíðinda. (1496)
54. mál, ábúðarlög
Sigurður Eggerz:
Ég skal í stuttu máli rifja það upp, sem ég hefi sérstaklega fundið að frv.
Í fyrsta lagi hefi ég fundið að því, að sveitarstjórn er heimilað að byggja upp jarðir án þess að spyrja jarðeigendur um leyfi. Í öðru lagi, að ríkustu landsdrottnar eru leystir undan slíkum skyldum, og í þriðja lagi, að ef leiguliði neitar að kaupa jörð, þá skal hann hafa fyrirgert ábúðarrétti sínum.
Hv. 1. þm. Arn. sagði, að það myndi ekki koma neitt við mig, þótt eignarréttur leiguliðans yrði fyrir borð borinn. Ég lýsti því yfir í byrjun ræðu minnar áðan. að ég vildi jafnt heill beggja, leiguliða og jarðeigenda.
Þá sagði hv. 1. þm. Árn., að það hefði verið betra, að ég hefði lifað á fyrri öldum. Ég er þakklátur hv. þm. fyrir að hann lítur svo á, að það hefði bætt aldar háttinn. En ég vil sameina óskir okkar, og óska þess, að ég lifi á komandi öldum.