28.02.1931
Neðri deild: 12. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í C-deild Alþingistíðinda. (1497)

54. mál, ábúðarlög

Magnús Jónsson:

Ég sé ekki ástæðu til að bæta miklu við það, sem ég hefi áður sagt, því hv. 1. þm. Árn. varð fullkomlega skotaskuld úr að hrekja röksemdafærslu mína.

Ég benti á það, að ef ábúðarlögin þrengja svo kosti eigenda, að þeir vilji losna við jarðirnar, en hlaða aftur undir leiguliða, svo að þeir kæra sig ekki um að kaupa, þá muni jarðirnar falla í verði. Þetta hefir hv. flm. ekki reynt að hrekja. Hann færði jafnvel ljós rök fyrir minni skoðun, er hann lýsti því með dökkum litum, hvernig hag leiguliðanna væri komið — að eignarréttur þeirra á um bótum væri fyrir borð borinn. En þetta ástand ætti einmitt að hvetja þá til að eignast jarðir sínar. En þessu er breytt með frv., þar sem kjör þeirra eru bætt.

Skal ég ekki tala um það meira, en ef frv. verður samþ. og hinir tveir ólíku straumar látnir mætast, þá mun það koma í ljós, hvor okkar hv. 1. þm. Árn. hefir haft réttara fyrir sér.

Hv. þm. getur auðvitað sagt, að ég skuli benda á betri leiðir. En ég hefi ekki lagt höfuðið í bleyti til þess að finna nýjar leiðir í þessu máli, enda eru margir mér færari um það hér í þessari hv. d. En þó maður sé staddur í öskunni, á maður þó ekki að stökkva í eldinn. Og ég hefi bent á það, að annaðhvort mætti bæta svo aðstæður leiguliða, með hægari útvegun fjár, að þeir vildu kaupa jarðirnar, eða þá þröngva svo kosti beggja aðila, að löngun beggja gengi í sömu átt.

Ef til vill gerir landbn. nauðsynlegar umbætur á þessu frv., og vil ég því ekki leggja stein í götu þess, að frv. komi til nefndar.