02.03.1931
Neðri deild: 13. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 749 í C-deild Alþingistíðinda. (1510)
58. mál, útsvör
Flm. (Einar Jónsson):
Þetta er hvorki flókið mál né stórt, og þarf því ekki langan formála að hafa fyrir því. Ég hefi áður leyft mér að fara fram á samskonar breyt., en þó nokkuð á annan hátt. Samkv. l. um útsvör frá 1926 eru 2 gjalddagar á útsvörum til sveita, sem sé 15. júlí og 15. okt. Það hefir verið nokkurt umtal um það í Rangárvallasýslu, að fyrri gjalddaginn væri á óþægilegum tíma, sérstaklega vegna þess, að manntalsþing eru samkv. lögum háð í júní. Eiga oddvitar því erfitt með að standa í skilum með lögboðnar greiðslur á réttum tíma, ef gjalddagar eru þessir. Þeir fara því fram á, að gjalddaganum sé breytt. En það þótti sigurvænlegra að bera það fram í því formi, að hver sýslunefnd gæti ákveðið annan gjalddaga eða aðra gjalddaga en í lögum eru ákveðnir nú, eftir eigin geðþótta, heldur en að lögbjóða aðra fasta gjalddaga á ný. Með þetta fyrir augum er þetta litla og einfalda frv. fram borið. Sé ég ekki þörf að ræða það frekar. Vona ég, að því verði sýnd sú velvild, að því verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og til hv. allshn. — Ég vil þó taka það fram, að ef n. eða þingið vildi heldur setja aðra lögákveðna gjalddaga, gæti ég fellt mig við, að fyrri gjalddaginn væri færður fram, t. d. til 1. júní. Síðari gjalddaginn má gjarna halda sér. En sá fyrri þarf að færast fram um mánuð, eða helzt til 1. júní.