10.03.1931
Neðri deild: 20. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í C-deild Alþingistíðinda. (1512)

58. mál, útsvör

Frsm. (Lárus Helgason):

Eins og hv. þm. hafa tekið eftir, var efni þessa frv. ekki annað en breyt. á gjalddögum sveitarútsvara. Það fór fram á, að sýslunefndir gætu fengið breyt. framgengt með samþykki ráðh. En allshn. hefir gert þá breyt., að hreppsnefndir geti fengið gjalddaganum breytt með samþykki sýslunefnda, og er það einfaldara.

Gjalddagarnir þykja ekki heppilegir. Sá fyrri er 15. júlí. Fyrir þann tíma eru sýslumenn búnir að halda manntalsþing, og eiga oddvitar þá að svara stórum upphæðum fyrir hreppsfélögin. Er þá eðlilegra, að fyrri gjalddaginn sé kominn.

Eins og nál. ber með sér, leggur n. til þessa breyt., er ég gat um. Fleira hefi ég ekki að segja um þetta frv. fyrir n. hönd.