13.04.1931
Neðri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1118 í C-deild Alþingistíðinda. (1552)
224. mál, íbúðarhús á prestssetrum
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Ég vil sem minnst ræða þetta frv. við þessa umr., en aðeins leyfa mér að geta þess, að frv. er flutt af allshn. samkv. beiðni hæstv. stj., en þó með ýmsum breyt. frá því frv., er fyrir lá. Ég skal geyma mér að fara út í þær breyt. þar til við 2. umr.