31.03.1931
Neðri deild: 38. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í C-deild Alþingistíðinda. (1596)

283. mál, virkjun Efra-Sogs

Héðinn Valdimarsson:

Ég hefi óskað eftir, að þetta mál væri tekið á dagskrá. Ríkisstjórnin situr einráð 9 mánuði ársins og getur gert hvað hún vill, en 3 mánuði einungis situr Alþingi, sem hefir eitt umboð þjóðarinnar til löggjafar, og mætti þá vænta, að alþingismenn gætu haft ráðrúm til að koma fram áhugamálum sínum og kjósenda, án mótþróa stjórnarinnar. En þegar ráðríki stj. gengur svo langt, að hún heimtar að koma að einungis sínum málum á dagskrána, og aðrir þingmenn geta ekki komið sínum að fyrir ofríki hennar, þá er eina ráðið fyrir þm. að neyta réttar síns samkv. þingsköpum og heimta að koma á dagskrá þeim málum, sem þeim hafa verið falin og þeir bera fyrir brjósti.

Þessi tvö mál, sem ég ásamt flokksmönnum mínum í deildinni og 3 öðrum þm. heimta á dagskrá, eru stórmál. Sogsvirkjunin er óefað stærsta mál landsmanna. Sogið er sá staður í Norðurálfu, sem bezt mun vera fallinn til virkjunar. Nálægt Soginu liggur Rvík, með nálægt 30 þús. manns, með sína gömlu rafveitu, litla og ónóga. Hér er mikil þörf á rafmagni, og útreikningar allra sérfræðinga, sem um málið hafa fjallað, hafa sýnt, að virkjun Sogsins ber sig mjög vel fjárhagslega, fljótlega eftir að hún er komin á, en þar með er ekki sagt, að aðrir geti ekki haft gagn af henni. Af virkjun Efra-Sogsins geta auk Reykjavíkur haft not með fjárhagslegum ábata Akranes, Reykjanesskaginn, Hafnarfjörður, Eyrarbakki og Stokkseyri og jafnvel Vestmannaeyjar.

Það hefir verið tala um það, hvað snertir rafmagn til sveitabæja, að það hafi ekki verið nóg rannsakað, og er það að vísu rétt, en hinsvegar er virkjunin nauðsynlegt fyrirtæki, jafnvel þótt hún kæmi að engum notum fyrir sveitirnar. og jafnvel þótt engum væri hagur að nema Reykjavík, en nú er vitað, að allmikill hluti sveitanna og öll kauptúnin á Suðurlandi hafa af þessu sama hag sem Reykjavík. Til þeirra frekari rannsókna, er með þarf um not sveitabæja af virkjuninni, eru 4 ár nægilegur tími, en virkjunin mun taka hann tíma.

Hæstv. fjmrh. kom með ýmsar mótbárur gegn frv., t. d. að ríkissjóður eigi að leggja fram fé til frekari vegarumbóta Þingvallaveginum, og fullgera veg austan Þingvallavatns niður að Efra-Sogi; en til þessara umbóta leggur Rvíkurbær fram 140 þús. eftir frv. Mér finnst nú, að úr því að hver vegurinn á fætur öðrum er tekinn í þjóðvegatölu, þá sé ekki mikið hægt að mæla í gegn því, að ríkissjóður taki á sínar herðar nokkurn hluta kostnaðarins við þennan veg, sem verður mjög svo fjölfarinn og til almennra nota, þar sem ríkissjóður ætti raunverulega að bera allan kostnaðinn.

Þá hefir verið fundið að því, að ekki er gert ráð fyrir því í frv., að önnur héruð en Reykjavík taki þátt í þessu. Það er ætlazt til, að Rvík taki að sér virkjunina fyrst, unz virkjunin er hálfnuð, en síðan ríkissjóður að hálfu leyti, m. ö. o. þegar líkindi eru til, að rafmagnið geti farið að lækka í verði, þá komi ríkið til, og þar með önnur héruð landsins en Rvík, svo að eins vel virðist farið með þau eina og hægt er, þar sem Rvík ber ábyrgðina meðan einhver áhætta er, en þá fyrst, er fyrirtækið er með öllu tryggt, koma hin héruðin.

Hæstv. ráðh. og stj. hans, sem undanfarin ár hefir eytt svo miklu fé úr ríkissjóði, að ekkert fé er nú fyrir hendi, er vandræði og atvinnuleysi steðja að, og nú talar hátt um takmörkun verklegra framkvæmda, ætti að fara varlega í mótspyrnu gegn þessu frv. Það mundi hafa í for með sér allmikla atvinnu, án tilkostnaðar úr ríkissjóði, sem bætt gæti nokkuð úr þeim vandræðum, sem að sumu leyti stafa af hirðuleysi stjórnarinnar í fjármálum landsins.

Hæstv. ráðh. segir, að dýrtíðin í Rvík sé mikið átumein. Heldur hann, að hún lækki mikið við það, að staðið sé á móti því, að hér í bænum fáist ódýrt og nægilegt rafmagn til suðu og iðnaðar? Virkjun Sogsins er einmitt ein af hinum öruggustu ráðstöfunum til lækkunar þessarar dýrtíðar, sem nú er hægt að gera.

Það er fjarri því, að við jafnaðarmenn teljum rafmagnsmálinu lokið, þótt Sogsvirkjunin verði samþ. Við flytjum nú á þinginu annað frv., um rafveitulánasjóð, þar sem hugsað er fyrir rafmagnsvirkjunum og séð fyrir fé til þeirra úti um allt land með tíð og tíma. En þar verður að byrja, sem allt er til þess hagkvæmast, flest fólk getur notið þess, og verkið er fjárhagslega öruggast, en það er á Sogsvirkjuninni. Því virðist liggja í augum uppi þótt það sé gagnstætt ummælum hæstv. dómsmrh., sem finnst undarlegt, að þar skuli byrjað, sem aðstaðan er bezt, flest fólkið. Hann virðist helzt vilja láta byrja þar, sem aðstaðan er verst og fólkið fæst, og vil ég ekki eyða orðum að því að mæla gegn slíkri helberri vitleysu.

Hæstv. dómsmrh. segir, að úr rafveitu sveitanna, sem íhaldsmenn hafi verið með, sé komin rafveita Rvíkur. Mer kemur ekki til hugar að verja fyrri hugmyndir íhaldsmanna né frv. þeirra um rafveitumálin, en mér virðist það ekki nema sjálfsagt að þar sem lengst hefir verið um málið hugsað og það bezt undirbúið, sé því fyrst hrundið í framkvæmd. Það hefir og sýnt sig mjög vel við nánari rannsókn í raforkumálan., að rafveitur í sveitum verða ekki framkvæmdar, nema á stöku stað, þar sem sérstaklega vel hagar til, öðruvísi en í sambandi við rafveitur bæja og sjávarþorpa, sem geta borið þær uppi fjárhagslega. Af þeim ástæðum er eini möguleikinn fyrir rafveitum um sveitirnar, rafveitur fyrir bæina. Nú sést við nánari athugun, að þau héruð, sem gætu notið Sogsvirkjunarinnar, eru einmitt beztu héruð landsins og frjósömustu, Árnessýsla, Borgarfjarðar- og Mýrasýsla. Eins og eðlilegt væri, að ríkið legði alla áherzlu á að styrkja ræktun, byggingar og nýbýli í þessum héruðum, svo er og eðlilegt að Sogsvirkjunin sé studd þessara héraða vegna engu síður en bæjanna á Suðvesturlandi. Þá mundi og Árnessýsla hafa ýms önnur hlunnindi af þessari virkjun, atvinnu fyrir Árnesinga og aukna afurðasölu vegna virkjunarinnar.

Hæstv. dómsmrh. talaði mikið um Rvík og lánstraust hennar. Ég vildi sízt halda hlífiskildi yfir stjórn Rvíkur, en þeir, sem kvartað hafa undan lánstraustsspjöllum fyrir landið vegna rógs Morgunblaðsins, ættu að tala varlega um lánstraust Rvíkur, enda munu menn, sem athuga bæjarreikningana, sjá, að Rvík er ekki bær, sem er eignalaus og úrræðalaus. Hún er bær, sem á miklar eignir, sem bera sig vel, þótt bænum sé illa stjórnað af íhaldinu, sem þar er einrátt. Ég er ekki grunlaus um það, að ríkisstj. hafi ekki hjálpað til þess að fá lán fyrir Rvík, heldur einmitt hafi gert sitt til að varna því, að bærinn fengi lán, og er það langt gengið móti höfuðstað landsins. Það er víst, að Sogsvirkjunin mun ná til 2/5 landsmanna og að hún mun vel svara kostnaði. En það kom fram í ræðu hæstv. ráðh., að stjórnin væri móti þessu vegna áhættu ríkisins. Ef menn athuga bæjarreikningana og sjá, hvað eignir eru miklu meiri en skuldir, þá er auðséð, að í rauninni er engin hætta á því, að Rvík geti ekki staðið straum af sínum skuldum. Og þó að það sé bæjarsjóður Rvíkur, sem tekur lánið, þá eru það aðrir, sem eiga að borga, — það er virkjunarfyrirtækið sjálft. Það er engin hætta á því, að eftir fáein ár geti virkjunin ekki staðið straum af vöxtum og afborgunum og öllum rekstrarkostnaði. Hver er þá áhætta ríkissjóðs? Ég álít hana enga. Ég veit, að illmögulegt er fyrir Rvík að fá lán erlendis án ríkisábyrgðar. Af hvaða ástæðu, stendur á sama í þessu sambandi, þegar það er ekki af því, að bærinn standi sig illa. Þar sem nauðsyn er fyrir Rvík að ráðast í þetta fyrirtæki, þá er það sjálfsögð skylda ríkisins að ganga í þessa ábyrgð. Hæstv. ráðh. talaði um það, að aðrir kaupstaðir gætu tekið lán. Stórlán hefir þeim nú hingað til ekki tekizt að fá, en ég tel, að ekki sé með öllu útilokað, að það gæti tekizt fyrir Rvík. Undirbúningurinn undir málið mundi þá taka langan tíma og tefja fyrir Sogsvirkjuninni. En svo er það algerlega ástæðulaust, að ríkið aðstoði ekki Rvík og aðra bæi í slíkum málum með lánstrausti sínu, á sama hátt sem áður hefir verið gert og stöðugt er gert fyrir sveitirnar. Ég vil spyrja hæstv. fjármrh., hvort hann haldi, að sveitirnar fái milljónalán, ef bæirnir væru ekki með og engin ríkisábyrgð. Það er augljóst, að slík lán fengjust ekki. Bæði bæir og sveitir verða að aðstoða hvert annað í þessum málum.

Hæstv. dómsmrh. talaði um sjálfstæði landsins, að því væri stofnað í voða. Það er svo fjarri því, að fá mál eru meiri sjálfstæðismál en Sogsmálið, um opinbera virkjun og rekstur Sogsins án íhlutunar erlendra virkjunarfélaga og sem gerir mögulegt að losa landið við kaup á miklum erlendum varningi, kolum og olíu, en bý til undirstöðu undir innlendan iðnað.

Allt þetta hjal stj. um áhættu ríkissjóðs og hættu fyrir landið er út í loftið. Enda vita menn það, að allt annað liggur á bak við. Stj. er send út í þessu máli af ákveðnum erlendum manni, sem hefir hælinn á hnakka hennar. Það eru ekki hagsmunir þjóðarinnar né jafnvel sveitanna sem þar ráða, heldur þvert á móti.