02.03.1931
Neðri deild: 13. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í B-deild Alþingistíðinda. (161)

67. mál, verslanaskrár, firma og prókúruumboð

Flm. (Jón Ólafsson):

Þessar litlu breytingar, sem hér er gert ráð fyrir að gera um verzlanaskrár, eru undirbúnar og athugaðar af Verzlunarmannafél. Rvíkur og Verzlunarmannafél. „Merkúr“, svo að flm. hafa ekki ennþá haft tækifæri til að fara verulega út í frv.

Þegar lög voru sett 1903 um verzlanaskrár, firmu og prókúruumboð, hafa menn látið firmu hljóða á eigið nafn. Þessu var breytt 1910 og síðan hefir verið alltítt, að óglöggt væri, hver á firma, sem gengur undir einhverju nafni. Þetta hefir komið því meir í ljós, sem lengra hefir liðið, og nú er það oft, að verzlun hljóðar á annað nafn en hins raunverulega eiganda. T. d. er verzlun kölluð & Co., í stað þess að einn maður á hana, og á hann þá náttúrlega að vera skráður eigandi.

Verzlunarstéttinni hefir ekki þótt þetta nógu greinilegt. Breytingin, sem hér er farið fram á, er þess eðlis, að ef hún verður að lögum, verður að gera grein fyrir, hverjir ganga undir þessu og þessu firmanafni. Í núgildandi lögum segir svo: „Firma eins manns er eigi skylt að tilkynna, frekar en hann sjálfur vill“, en samkv. þessu frv. yrði bætt aftan við: „ef atvinnan er rekin undir nafni hans sjálfs“.

Ég held, að ekki þurfi langar umr. um þetta, en óska, að frv. verði vísað til allshn.