04.03.1931
Neðri deild: 15. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í C-deild Alþingistíðinda. (1630)

70. mál, sundhöll í Reykjavík

Flm. (Jón Ólafsson):

Þetta mál fer að verða kunnugt í þessari hv. þd. Er það borið fram hér í þriðja sinn, og búast má við, ef það fær ekki þá afgreiðslu nú, sem til var ætlazt, að það verði áfram gestur hér. Af því langt er orðið síðan það var fyrst flutt hér, þá má vera, að sumir séu búnir að gleyma gangi þess, og er því rétt að rifja hann lítillega upp.

Árin 1925 og 1926 var vaknaður talsverður áhugi hér í bæ fyrir því að leiða heitt vatn frá laugunum inn í bæinn, til að hita hús og nota afganginn til að hita sundlaug. Um þetta mál voru nokkuð skiptar skoðanir, aðallega fyrir það, að bæði mér og ýmsum öðrum var það ljóst, að töluverður stofnkostnaður mundi að þessu verða fyrir bæjarsjóðinn. Það var því nokkuð dauft yfir þessu máli, þangað til hæstv. núv. dómsmrh. á þinginu 1928 bar fram frv. um sundhöll í Reykjavík. Í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að ríkissjóður leggi til helming stofnkostnaðar byggingarinnar, þó ekki yfir 100 þús. kr., en það var af því, að þá lá fyrir teikning og áætlun frá húsameistara ríkisins, og eftir henni var kostnaðurinn talinn 200 þús. kr. Þegar málið kemur svo til menntmn., setur hún inn í frv., að það skuli áskilið, að stj. samþykki áætlun og lýsingu sundhallarinnar. Þar með var búið að slá niður að nokkru leyti þá grundvallarhugsun, sem lá í frv. upphaflega, að því er teikningar snerti. En sá áhugi, sem þessi hv. d. sýndi á málinu, gaf okkur byr í seglin til að byrja á fyrirtækinu, þótt okkur þætti það að sumu leyti viðsjárvert.

Hæstv. dómsmrh. fór nokkuð sterkum orðum um nauðsyn málsins og sagði m. a., að þetta væri vafalaust langþýðingarmesta málið, sem hægt væri að gera fyrir Reykjavíkurbæ, bæði með tilliti til heilbrigði og menningar. Þeir, sem sæktu menntun til Rvíkur, áttu að fá ókeypis aðgöngu að þessum stað; og á þessari ótvíræðu nauðsyn byggðist það, að Reykjavík réðst í verkið.

Þegar fara átti að semja um málið við hæstv. dómsmrh., kom það á daginn, að húsameistari og borgarstjóri og margir fleiri, sem eitthvert vit höfðu á þessu máli, komust að þeirri niðurstöðu, að ekki væri hægt að notast við þá upphaflegu teikningu, og var það ráð því tekið að láta fara fram rannsókn á málinu á ný, og sigldu því húsameistari ríkisins og bæjarverkfræðingur í þessu augnamiði. Kom þá upp úr kafinu sú staðreynd, að fyrirtækið mundi ekki geta kostað minna en 480–500 þús. kr. Það stóð í nokkru þjarki um þetta við hæstv. dómsmrh. En nú er tilskilið í frumv. með frágangi menntmn., að aðeins þyrfti að fá samþykki viðkomandi ráðh. á lýsingu og kostnaðaráætlun, til þess að framlagið fengist, og ég get ekki betur séð en að ef þessi skilyrði eru uppfylt, þá sé ekki hægt að losna undan því að greiða helming kostnaðarins. Því að þótt í lögunum standi „allt að 100 þús. kr.“, þá er þetta byggt á því, að sundhöllin fari ekki fram úr 200 þús. kr. (SE: Þetta er hneykslanleg áætlun !). Þetta var áætlun, sem vitanlega eins og ýmsar áætlanir vantaði margt í það, sem þurfti að athugast.

Nú horfir málið þannig við, að búið er að setja inn í frv. sem skilyrði fyrir styrknum, að ef samkomulag næðist við dómsmrh. um áætlun og teikningar, þá beri ríkissjóði í rauninni að greiða helming kostnaðar, og þetta samkomulag náðist. Nú er þetta verk, sem Reykjavíkurbær réðst svo fljótt í, vegna góðra undirtekta ráðh. og Alþingis, stöðvað í bili vegna fjárskorts. Það má kannske segja, að úr því muni rætast, en raunar er ekki mikið útlit fyrir, að bærinn geti lokið þessu verki, nema Alþingi hlaupi undir bagga og standi við þau loforð, sem það hefir gefið. Ef ekki er hægt að fá Alþingi til þess, er fyrirsjáanlegt, að verkið muni stranda um ófyrirsjáanlegan tíma.

Ég skal viðurkenna, að það er nokkuð mikil fjárhæð, sem hér er ætlazt til, að lögð sé fram. En hún getur ekki talizt ósanngjörn, þegar tekið er tillit til þess, hvað Reykjavíkurbær sækir lítið á um slíka hluti úr ríkissjóði, og hvað hann hefir lagt af mörkum, því að 3/5 hlutar allra tekna ríkissjóðsins koma frá þessu bæjarfélagi (HK: Það er nú ekki gott að reikna það út). Ég ætlast aðeins til þess, að Alþingi líti á þetta sem skyldu sína um að standa við gefin loforð og um að sýna þessu héraði alla þá sanngirni, sem það á heimtingu á alveg á borð við önnur héruð, sem fengið hafa svipaðan styrk.

Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál, en legg til. að frv. verði vísað til fjhn. að lokinni þessari umr.