04.03.1931
Neðri deild: 15. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í C-deild Alþingistíðinda. (1631)

70. mál, sundhöll í Reykjavík

Magnús Guðmundsson:

Það er aldrei skemmtilegt að fá bakreikninga, eins og hér er um að ræða. Það er leitt, þegar fyrir liggja áætlanir eins og hér var, og þær reynast síðar meira en helmingi of lágar.

Ég vil nú út af ræðu hv. 3. þm. Reykv. spyrja hann, hvort ég hafi skilið ræðu hans rétt á þann veg, að dómsmrh. hafi samþ. teikningu og áætlun sundhallarinnar með það fyrir augum, að ríkissjóður borgaði helming kostnaðar. Það er atriði, sem skiptir miklu, því að ekki er gaman að þurfa að rifta gefin loforð frá ráðherra. En það má fyrr rota en dauðrota. Á þinginu 1928 var talað um, að sundhöllin mundi kosta 200 þús. kr., en nú sýnir sig, að hún kostar 500 þús. kr. a. m. k. Þetta er í samræmi við ýmsar áætlanir, sem hæstv. dómsmrh. hefir komið með og samþykktir þingsins hafa verið byggðar á. Arnarhváll átti að kosta 200 þús. kr., en 351 þús. kr. er kostnaðurinn þegar orðinn. Sama er að segja um vinnuhælið eða letigarðinn. Lögin takmörkuðu fjárframlög til þess við 100 þús. kr., en þau eru komin á þriðja hundrað þúsund. Ég held, að það sé nauðsynlegt fyrir þingið að athuga dálítið áætlanir frá þessum ráðh., því að það hefir komið í ljós, að þær eru á engu viti byggðar, eða þá að framkvæmdin er þannig, að hún nær engri átt. Það eru svik við þingið að koma með beiðnir um framkvæmdir, sem eiga að kosta þetta og þetta, en svo kosta þær margfalt meira.

Ég vil fá nákvæmar upplýsingar í þessu máli, áður en ég læt nokkuð uppi um, hvort ég er með því eða móti.