25.02.1931
Efri deild: 9. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í C-deild Alþingistíðinda. (1668)

36. mál, einkasala á tóbaki og eldspýtum

Jón Baldvinsson:

Fyrst hv. 1. landsk. fór að vitna í umr. og nál. fyrri ára, þá vil ég aðeins benda á, að tekjur af tóbakseinkasölunni í þau fjögur ár, sem hún stóð, voru að meðaltali yfir 200 þús. kr. á ári. Og hv. 1. þm. Skagf. (MG) sagði, er einkasalan var lögð niður, að hún hefði fyllilega gefið þær tekjur, sem við var búizt, og að hann, sem var höfundur einkasölunnar, væri fyllilega ánægður með árangurinn.

Ég þarf svo ekki að segja fleira á móti því, sem hv. 1. landsk. sagði.