18.03.1931
Efri deild: 27. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í C-deild Alþingistíðinda. (1685)
51. mál, forkaupsréttur kaupstaða og kauptúna á hafnarmannvirkjum o. fl.
Jón Baldvinsson:
Það er ekki vafamál, að þetta er til mikils gagns fyrir bæjarfélögin. Ég held, að sú skoðun ríki hjá flestum bæjarstj., að það sé til mikilla bóta, að bæjarfélögin eigi löndin, sem bæirnir eru á. En með frv. þessu eignast bæirnir ekki meiri rétt en nú er í lögum fyrir sveitarfélög. Þau hafa forkaupsrétt á jörðum, sem seldar eru í sveitinni. —
Bæjunum er og til mikils hagnaðar að eiga bryggjustæði, þar sem útgerð er. Það hefir sýnt sig, að heilum vinnustöðvum hefir verið haldið lokuðum, þótt menn hafi viljað starfrækja þær, af því að einstakir menn réðu yfir þeim. Ef forkaupsréttur bæjarfélaga verður lögtekinn, fer ekki hjá því, að smátt og smátt komast eignirnar í eigu þess, því við og við fara fram sölur á fasteignum. Og auðvitað eru þetta ekki meiri hömlur á fasteignum en nú er í lögum um forkaupsrétt á jörðum.
Þegar hv. 4. landsk. talaði um hömlur þær, sem þetta legði á viðskiptin, þá eru það meiri hömlur fyrir bæjarfélögin, ef þau þyrftu að sækja um það til Alþingis, sem aðeins kemur saman einu sinni á ári, að mega taka eignarnámi þær eignir, er þeim væru nauðsynlegar. Þær eignarnámsheimildir, sem til eru í lögum, eru svo þröngar, að þær veita ekki bæjunum þann rétt, sem þetta frv. gerir ráð fyrir.