06.03.1931
Neðri deild: 17. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í C-deild Alþingistíðinda. (1696)

87. mál, flugmálasjóður Íslands

Flm. (Jón Auðunn Jónsson):

Ég vildi fyrst leiðrétta villu, sem slæðzt hefir í grg. frv. um síldveiðina á síðasta ári. Í staðinn fyrir 545 þús. mál bræðslusíldar á að standa 545 þús. hektólítrar. Villan stafar af því, að maður, sem ég talaði við í Fiskifélaginu og bað að gefa mér upp tölu síldarmála, hafði aðeins litið á töluna í skýrslunum, en ekki gætt þess, að í skýrslunum er síldin talin í hektólítrum. Af þessu leiðir, að skattur af síldveiðum til flugmálasjóðs hefir verið 54 þús., en ekki 70 þús. kr., eins og stendur í grg. En jafnvel þótt svo sé, breytir það ekki aðalatriðum málsins, því að á það verður að líta, að síldveiðin hefir verið sköttuð svo hátt áður, að það munar miklu frá því, sem á aðrar atvinnugreinar er lagt. Eins og menn vita, er nú goldið 1,50 kr. af hverri síldartunnu til ríkissjóðs, en meðalverð mun ekki vera meira en sem svarar 9–10 kr. á innihaldi hverrar síldartunnu, svo að útflutningsgjaldið nemur 15%. Og nú er útlit fyrir, að verð verði enn lágt á næsta ári, sérstaklega á bræðslusíld, því að afurðir þessar hafa fallið svo í verði, að búizt er við, að ekki fáist nema 4 kr. fyrir málið. Flugmálaskatturinn einn yrði þá, að óbreyttri upphæð, 21/2%, og sjá allir, að það yrði mjög tilfinnanlegt.

Alstaðar frá hafa borizt áskoranir um að lækka gjaldið, frá þeim mönnum, sem við síldveiði fást, og jafnvel um að fella það alveg niður. Við flm. höfum ekki viljað ganga lengra en að lækka það um helming. Ég álít rétt og sjálfsagt, að halda áfram tilraunum með flugvélar, því að þær geta orðið að gagni, þó að óhætt sé að fullyrða, að notin séu ekki teljandi enn sem komið er. En líka má fullyrða, að jafnvel þótt flugvél væri að mestu eða öllu leyti bundin við leitina það 10 vikna skeið, sem síldveiðin stendur, mundi sá kostnaður ekki fara fram úr 30 þús. kr. En auk þess hefir verið ætlazt til, að sú flugvél hefði nokkra farþegaflutninga. En síðastl. sumar urðu svo sem engin not að flugvélinni, bæði af því, að veðrátta var ekki góð, og vélin bilaði snemma á síldartímanum. Ég vona, að hv. þdm. sjái ástæðu til að lækka þetta gjald ekki minna en hér er farið fram á. Ég óska, að frv. verði að lokinni umr. vísað til fjhn.